Spegillinn

Spegillinn 17. september 2021


Listen Later

Ofbeldismálum gagnvart fötluðum sem berast réttindagæslumönnum þeirra hefur fjölgað. Dæmi eru um umönnunarofbeldi ekki síður en kynferðis- og heimilisofbeldi. Ólöf Rún Skúladóttir ræddi við Jón Þorstein Sigurðsson yfirmann réttindagæslumanna fatlaðs fólks.
Hlutabréfaverð í íslensku kauphöllinni hefur hækkað um rúmlega 65 prósent síðustu 12 mánuði og hvergi meira.
Gallar eru í hönnun nýs rannsóknarhúss Landspítalans að mati yfirlækna sem hafa ítrekað bent á þá en segja að skort hafi samráð. Ólöf Rún Erlendsdóttir sagði frá og ræddi við Jón Jóhannes Jónsson yfirlækni erfða- og sameindalíffræði á Landspítalanum.
Forseti Brasilíu ætlar að hunsa kröfu um að allir sem taka þátt í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í næstu viku skuli vera bólusettir gegn kórónuveirunni. Hann segist ætla að verða síðasti Brasilíumaðurinn sem þiggur bólusetningu. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Akstur um Siglufjarðarveg er eins og að spila rússneska rúllettu, segir Stefanía Hjördís Leifsdóttir, sem ók þar fram á stærðarinnar grjóthnullunga í morgun. Anna Þorbjörg Jónasdóttir talaði við hana.
Danir ætla að setja lög sem koma í veg fyrir lífstíðarfangar geti stofnað til rómantískra kynna við fólk utan múranna. Búist er við að lögin taki gildi í janúar næstkomandi. Jón Agnar Ólason sagði frá.
-----------
Landris við Öskju telst til tíðinda og kvikuþróin undir henni virðist vera grunnstæð, segir Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofunni. Ragnhildur Thorlacius talaði við hana og rakti líka umfjöllun frá Öskjugosi 1961 þar sem Sigurður Þórarinsson náttúrufræðingur segir frá aðstæðum við gosstöðina. Emil Björnsson fréttamaður ræddi við hann á sínum tíma.
Þrír flokkar til vinstri ætla að reyna stjórnarmyndun í Noregi eftir þingkosningarnar á mánudaginn var. Óvíst er þó um samstöðu. Deilumálin eru mörg kunnugleg fyrir Íslendinga, til dæmis utanríkismálin, en önnur eru framandi. Gísli Kristjánsson rekur stöðuna í viðræðunum.
Uppstokkun í bresku stjórninni bendir til að Boris Johnson forsætisráðherra hugi á kosningar 2023, ekki þegar kosningatímabilinu lýkur 2024. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Útsendingu fréttahluta stjórnaði Björg Guðlaugsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners