Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lítur það mjög alvarlegum augum að verðmæti sem hald var lagt á í tengslum við rannsókn á kampavínsklúbbnum Strawberries hafi horfið úr vörslu lögreglunnar.
Sakborningar í stóra markaðsmisnotkunarmáli Glitnis sögðust í dag hafa unnið innan þeirra reglna sem gilt hefðu í bankanum í áratug áður en þeir hófu þar störf.
Borgaryfirvöld íhuga að auka niðurgreiðslur til foreldra 18 mánaða barna sem eru hjá dagforeldrum.
Góðæri bitnar á nytjamörkuðum sem þurfa nú að afþakka notuð húsgögn í stórum stíl.
20 ár eru í dag síðan fyrsta fréttin um kynferðislegt samband Bill Clintons, þáverandi Bandaríkjaforseta, og Monicu Lewinsky, fyrrverandi lærlings í Hvíta húsinu, kom fyrir sjónir almennings.
Eiginfjárstaða stóru bankanna þriggja er mjög góð. Sumir telja bankana liggja á alltof miklu eigin fé og nær væri að borga út arð ekki síst því þá gætu runnið milljarðar til ríkisins. En lærdómurinn af fjármálahremmingunum á Íslandi og í Evrópu 2008 var meðal annars að herða reglur um eigið fé og arðgreiðslur. Sigrún Davíðsdóttir ræddi við Jón Þór Sturluson aðstoðarforstjóra Fjármálaeftirlitsins. Í síðari hluta viðtalsins verður hugað frekar að arðgreiðslum og aðstæðum bankanna.
Filmuvélar, framköllun og hillur fullar af myndaalbúmum. Þetta heyrir sögunni til hjá mörgum. Hversdagsmyndunum er ekki lengur raðað í albúm heldur eru þær vistaðar á símann eða sendar í skýið. Bókasafnið er hugsanlega orðið rafrænt líka og plötusafnið búið að víkja fyrir persónulegum lagalistum á tónlistarveitum. Hugverkum og dútli er líka hlaðið upp í ský og svo eru það öll tölvupóstssamskiptin og samskiptamiðlarnir, púlsmælingar mörg ár aftur í tímann og svo framvegis. Hvað verður um þessi gögn þegar þú deyrð? Á Íslandi ná persónuverndarlög út yfir gröf og dauða en samt er lítið mál fyrir aðstandendur að fá tölvuviðgerðarfyrirtæki til að ná í gögn af tölvum og símum látinna ástvina. Google og Facebook eru treg til að láta persónugögn látinna af hendi. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Helgu Þórisdóttur, forst