Spegillinn

Spegillinn 17.apríl 2018


Listen Later

Spegillinn 17.04.2018
Strokufanginn komst til Svíþjóðar á fölsuðum skilríkjum. Hann komst í loftið áður en lögreglan vissi að hann hefði flúið.
Æ algengara er að að skipulagðir glæpahópar teygi anga sína til Íslands. Þá færist í vöxt að íslenskir glæpamenn starfi með erlendum glæpahópum.
Forseti Frakklands varar íbúa Evrópu við því að hálfgert borgarastríð geisi í álfunni á milli frjálslyndra lýðræðissinna og vaxandi tilhneigingar til alræðis í mörgum ríkjum Evrópusambandsins.
Sómali sem var sviptur norskum ríkisborgararétti fær ekki afgreidda beiðni um alþjóðlega vernd hér á landi þar sem Norðmenn eru tilbúnir að taka við honum. Þetta er niðurstaða kærunefndar útlendingamála. Hann óttast sjálfur um stöðu sína í Noregi.
Samtökin Nei til EU, andstæðingar Evrópusambandsins í Noregi, telja að samþykkt norska þingsins um að innleiða svokallaðan þriðja orkupakka ESB brjóti gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar. Þau hafa hafið söfnun til að standa straum af kostnaði við réttarhöld vegna málsins. Bæði Noregur og Liechtenstein hafa samþykkt tilskipun ESB og nú er beðið eftir því hvaða afstöðu Íslendingar taka. Ef Ísland hafnar tilskipuninni gæti allur viðaukinn um orkumál í EES samningnum frestast til bráðabirgða. Arnar Páll Hauksson fjallar um málið í Speglinum.
Grænlendingar ganga til kosninga 24. apríl til að velja nýtt þing. Kim Kielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, ákvað að efna til kosninganna nú þó að kjörtímabilið renni ekki út fyrr en í haust. Kielsen tilkynnti þetta á blaðamannafundi sem boðað var til með skömmum fyrirvara. Bogi Ágústsson fer yfir stöðuna í Speglinum.
Í mörg ár hefur norska ríkisolíufélagið Statoil verið langstærsta fyrirtæki á Norðurlöndum - mælt í veltu. En senn eru dagar Statoil taldir. Stjórni fyrirtækisins hefur ákveðið að skipta um nafn til að bæta ímyndina og gera hana umhverfisvæna og nútímalega. Engu verður þó breytt í rekstri, eignarhaldi og framleiðslu eins og Gísli Kristjánsson, okkar maður í Osló rekur í Speglinum.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners