Spegillinn

Spegillinn 18. febrúar 2019


Listen Later

Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Davíð Berndsen
Fjögurra milljóna króna mánaðarlaun eru ekki hófleg og ekki í neinum veruleika sem við þekkjum. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um laun bankastjóra á Alþingi í dag.
Kúabændur kusu með yfirgnæfandi meirihluta að viðhalda kvótakerfinu í stað þess að gefa mjólkuframleiðslu frjálsa. Atkvæðagreiðslan, sem er hluti af endurskoðun búvörusamnings, hefur staðið í viku og lauk á hádegi í dag. Aðeins um 10% þeirra sem greiddu atkvæði vilja afnema framleiðslustýringu. Þetta þýðir að breyta þarf hluta búvörusamnings. Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, fagnar þessari niðurstöðu.
Fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf í Dyflinni á Írlandi fyrir rúmri viku dreifir myndum af Jóni ytra og biður fólk um að gefa sig fram hafi það orðið vart við ferðir hans. Lögreglan á Írlandi rannsakar málið enn og safnar upplýsingum frá almenningi. Írska lögreglan segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að rannsóknin á hvarfi Jóns sé enn í gangi.
Lítill hluti mála sem falla undir stafrænt kynferðisofbeldi kemur til kasta lögreglu og ákæruvalds þrátt fyrir fjölda slíkra brota, segir varahéraðssaksóknari. Þau mál sem þangað rati séu einungis toppurinn á ísjakanum.
VR hótar því að taka 4,2 milljarða úr eignastýringu hjá Kviku banka. Ástæðan er sú að Almenna leigufélagið, krefur leigjendur sína um tugþúsundum hærri leigu gegn þeim afarkostum að verða annars hent á götuna. Kvika samdi nýlega um kaup á GAMMA sem stýrir fasteignasjóði sem á Almenna leigufélagið.
Tzipi Livni, fyrrverandi utanríkis- og dómsmálaráðherra Ísraels, tilkynnti óvænt í dag að hún væri hætt í stjórnmálum. Hatuna flokkur hennar verður heldur ekki í framboði í þingkosningum í apríl.
Byggingaiðnaður og landbúnaður bera ábyrgð á nær helmingi allrar losunar gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Þetta segir Bill Gates, stofnandi Microsoft-tölvurisans.
Lengri Umfjöllun:
Sjö þingmenn Verkamannaflokksins hafa sagt sig úr flokknum. Ástæðan er óánægja með leiðtogann Jeremy Corbyn og harða vinstristefnu hans, í viðbót við tvískinning hans varðandi útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Klofningsflokkar í Bretlandi hafa hingað til ekki átt langa lífdaga svo ef að líkum lætur gæti þingmönnunum reynst erfitt að láta til sín taka. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Friðun eða ekki friðun Víkurkirkjugarðs eða Fógetagarðsins, þar liggur efinn. Menntamálaráðherra hefur enn ekki tilkynnt úrskurð sinn, en fjallað verður um málið í Speglinum. Til stóð að Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra ú
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners