Spegillinn

Spegillinn 18. janúar 2019


Listen Later

Forstjóri Wow segir stefnt að því að ljúka viðræðum við Indigo Partners í næsta mánuði. Hann segist bjartsýnn á að samningar takist. Hann gerir ráð fyrir að flugfargjöld eigi eftir að lækka, en Wow verði vel í stakk búið fyrir það.
Umhverfisráðherra furðar sig á því að náttúruverndarsamtökum sé líkt við hryðjuverkasamtök í nýrri skýrslu um efnahagsleg áhrif hvalveiða.
Niðurstöður nýrrar skýrslu bendir til þess að með því að friðlýsa Drangajökulsvíðerni væri hægt að styrkja umtalsvert samfélag og náttúru í Árneshreppi.
Karlar voru tvöfalt líklegri en konur til að færast úr tekjulægsta hópnum í þann tekjuhæsta á árunum 1991 til 2017.
Sjö eru látnir af völdum inflúensu í Króatíu. Faraldurinn er mun skæðari en undanfarin ár. Fólk á öllum aldri veikist alvarlega.
Blindir starfsmenn hafa hingað til ekki getað skráð eða sótt upplýsingar í tölvukerfi þjónustumiðstöðvar fyrir blinda og sjónskerta. Vinnuumhverfi þeirra gjörbreyttist í dag, með nýju kerfi.
Í síðari hluta Spegilsins:
Vinnumarkaðsfræðingur segir að miðað við verkfallsboðun 2015 sé verkfallsviljinn í VR talsvert minni en í Eflingu. 30 ár eru frá því að VR efndi til verkfalls.Arnar Páll rifjar upp verkfallssöguna og ræðir við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson.
Landlæknisembættið er að leggja lokahönd á öryggisviðmið vegna fjarheilbrigðisþjónustu. Henni fylgja ýmsir kostir en tryggja verður að sjúklingar villi ekki á sér heimildir í netspjalli við lækna og að læknar álpist ekki til að nota Skype eða önnur ótrygg forrit. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Inga Steinar Ingason sem hefur umsjón með Miðstöð rafrænnar sjúkraskrár hjá Landlæknisembættinu.
Gísli Kristjánsson segir frá nýrri og endurbættri ríkisstjórn Ernu Solberg sem á að taka við eftir helgi.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners