Spegillinn 18.1.2022
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala segir tilefni til að tempra viðbrögð við veirunni í ljósi mikillar fækkunar innlagna, sérstaklega í eldri aldurshópum.
Tólf mál eru í vinnslu hjá teymi þjóðkirkjunnar gegn einelti og kynferðislegri eða kynbundinni áreitni og ofbeldi. Átta þeirra voru tilkynnt formlega á síðustu tveimur mánuðum.
Forstöðumaður farsóttarhúsa segir stöðuna þar vera nokkuð góða. Flestir sem þar dvelja nú eru Íslendingar. Færri ferðamenn og rýmkaðar reglur hafa sitt að segja.
Forstjóri Sjúkratrygginga segir að ákvæði um tveggja ára starfsreynslu talmeinafræðinga verði numið á brott á næstu dögum. Talmeinafræðingar kalla hins vegar eftir því að Sjúkratryggingar standi við orð sín, þau hafi ekkert heyrt frá Sjúkratryggingum.
Atlantshafsbandalagið hefur boðið Rússum til nýs fundar, til að ræða ástandið sem fjölmennt herlið þeirra við landamæri Úkraínu hefur valdið. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna er á leið til Úkraínu til að sýna stjórnvöldum samstöðu í deilunni við Rússa.
Lengri umfjöllun:
Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik biður um lausn til reynslu úr öryggisgæslu og algerri einangrun. Hann mætti fyrir rétti í dag og notaði tækifærið til að ítreka fyrri boðskap um hinn hvíta kynstofn. Engar líkur eru á að hann sleppi. Gísli Kristjánsson fór yfir réttarhöldin.
Það hefur andað köldu á milli Sjúkratrygginga Íslands og talmeinafræðinga undanfarin misseri. Fram til þessa hefur verið skilyrði fyrir nýútskrifaða talmeinafræðinga að þeir ljúki tveggja ára starfsreynslutímabili eftir útskrift áður en þeir fá samning við Sjúkratryggingar Íslands.
Í desember lofaði Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra bót og betrun og sagðist vilja afnema ákvæði um tveggja ára starfsreynslu.
Í vikunni vöktu talmeinafræðingar máls á því að ekkert hefði þokast í málinu, og engin breyting hefði orðið. Biðlistar halda áfram að lengjast og um 900 börn bíða þess að komast að, á meðan nýútskrifaðir talmeinafræðingar sitja heima með hendur í skauti.
Willum var spurður að því að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun hvernig hann sæi þessi mál fyrir sér nú. Bjarni Rúnarsson fjallar um málið.
Staðan í heilbrigðiskerfinu var til sérstakrar umræðu á Alþingi í dag. Málshefjandi var Oddný Harðardóttir, Samfylkingu og orðum hennar sérstaklega beint til Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Oddný hóf ræðu sína á því spyrja hvort nokkur velktist í vafa um að allt heilbrigðiskerfið og Landspítalinn glímdi við fjárhags- og mönnunarvan