Íslenska lögreglan hefur miðlað upplýsingum til fleiri Evrópulanda en Svíþjóðar um strokufangann Sindra Þór Stefánsson. Ekkert hefur spurst til Sindra frá því að hann lenti á Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi um hádegisbil í gær eftir að hafa flúið úr fangelsinu að Sogni.
Framkvæmdastjóri BHM segir málaferli óumflýjanleg vegna þess að starfsfólk Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans fái ekki samningsbundnar greiðslur í veikindaleyfi vegna myglu á deildinni. Spítalinn viðurkennir ekki að um atvinnusjúkdóm sé að ræða,
Danska lögreglan braut lög þegar hún hindraði mótmælendur og fylgjendur Falun Gong hreyfingarinnar í að mótmæla þegar forseti Kína heimsótti Danmörku. Lögreglan ákvað í dag að greiða mótmælendum skaðabætur.
Íslendingar eru jákvæðastir allra þjóða í garð innflytjenda og að vissu leyti sér á báti þegar kemur að uppgangi þjóðernispopúlisma í Evrópu. Þetta segir stjórnmálafræðingur.
Sérfræðingur loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna verður formaður loftslagsráðs sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Stefnt er að því að ráðið hefji störf í sumar.
Fjórar stúlkur úr leikskólanum Laufásborg tefla á heimsmeistaramóti í skólaskák í Albaníu í apríl. Forseti Íslands hitti stúlkurnar í morgun og hvatti þær til dáða.
Halldór Þorgeirsson, forstöðumaður hjá skrifstofu loftslagsamnings Sameinuðu þjóðanna í Bonn, verður formaður loftlagsráðs sem mun hefja störf í júní. Unnið er að því að senda út tilnefningarbréf til þeirra sem munu eiga fulltrúa í ráðinu. Arnar Páll Hauksson talar við Halldór Þorgeirsson og Guðmund Inga Guðbrandsson.
Viðskiptastríð milli tveggja stærstu hagkerfa heims, Kína og Bandaríkjanna, er mikið áhyggjuefni. Donald Trump hefur verið digurbarkalegur í yfirlýsingum sínum en margt bendir til þess að Kínverjar sigri í þessu stríði. Bandaríkin eru einfaldlega mun viðkvæmari fyrir afleiðingunum ef deilan vindur enn frekar upp á sig.
Pálmi Jónasson segir frá.