Spegillinn 18.06.2018
Lokanir á geðdeildum í sumar eru vegna skorts á starfsfólki, ekki fjármagni, segir framkvæmdastjóri geðsviðs.
Um það bil 4.100 flóttamenn komu til Ítalíu í maí eftir að hafa siglt yfir Miðjarðarhaf. Það er áttatíu og tveggja prósenta fækkun frá sama mánuði í fyrra. Í Þýskalandi stefnir í stjórnarkreppu vegna flóttamannastraumsins.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað bandaríska varnarmálaráðuneytinu að koma á fót geimher, sem yrði sjötta deild bandaríska hersins.
Varðskip Landhelgisgæslunnar, er með ísfisktogarann Akurey í togi, á leið til Reykjavíkur eftir að vél skipsins bilaði.
Vladimír Pútín baðar sig í sviðsljósi heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, sem margir kalla HM Pútíns. Vestrænir leiðtogar halda sig fjarri en ýmsir vafasamari karakterar njóta gestrisni Rússa. Pálmi Jónasson fer yfir stöðuna í Speglinum.
Núverandi auðlindanýtingi Hellisheiðarvirkjunar er sjálfbær þó ekki sé kveðið upp úr um nýtingartíma raforkufamleiðslunnar. Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar segir að þó að raforkuframleiðslu yrði hætt sé hægt að nýta Hengilssvæðið til heitavatnsframleiðslu í árhundruð. Í dag var kynnt niðurstaða sjálfbærnismats á Hellisheiðarvirkjun. Arnar Páll Hauksson talar við Mörtu Rós Karlsdóttur og Bjarna Má Júlíusson
Metanið stígur upp af gömlu ruslahaugunum í Glerárdal, rétt ofan Akureyrar. Stærstur hluti þess fer út í andrúmsloftið þar sem þessi öfluga gróðurhúsalofttegund veldur um 20 til 30 sinnum meiri skaða en koltvísýringurinn sem myndast þegar henni er brennt. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Stefán Steindórsson, Guðmund Hauk Sigurðarson og Guðmund Einar Jónsson