Spegillinn

Spegillinn 18.desember 2018


Listen Later

Spegillinn þriðjudaginn 18. Des 2018
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Júlíus Vífill Ingvarsson fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms í peningaþvættismáli til Landsréttar. Hann var dæmdur í 10 mánaða skilorðisbundið fangelsi í morgun.
Forstöðumaður fæðingarorlofssjóðs vonar að feður nýti sér fæðingarorlof í meira mæli í kjölfarið þess að hámarksgreiðslur fæðingarorlofs hækka um áttatíu þúsund krónur frá og með áramótum.
Bandarísk stjórnvöld leggja ekki lengur áhreslu á að Bashar al-Assad Sýrlandsforseti fari frá völdum
Harður árekstur varð á Suðurlandsvegi rétt vestan við Selfoss rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Fólksbíll og jeppi lentu saman og endaði jeppinn á hliðinni utan vegar. Tvennt var í bílunum og þurfti að beita klippum til að ná fólkinu út. Það var flutt til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík. Suðurlandsvegi var lokað eftir slysið en hann var opnaður á ný upp úr klukkan hálf sex.
Tillaga Minjastofnunar til friðlýsingar á Víkurgarði í Reykjavík tekur aðeins til þess svæðis sem í dag er borgartorg. Ekki er lagt til að svæðin í kring, sem hinn forni kirkjugarður teygði sig yfir, verði friðlýst.
Bandaríkin eru vænlegasta svæðið til að markaðssetja Grímsey fyrir erlenda ferðamenn. Ný könnun sýnir að Bandaríkjamenn hrífast af lundanum og þykir afar merkilegt að komast norður undir heimskautsbaug.
Gömlu Hringbraut í Reykjavík verður ekki lokað vegna framkvæmda við nýjan Landspítala fyrr en í byrjun febrúar. Þetta er í annað sinn sem lokun götunnar er frestað.
Viðvörun frá Veðurstofu. Vegna mikillar rigningar í dag og undanfarna daga á SA-landi og Austfjörðum má búast við auknum líkum á aurskriðum.
Lengri umfjallanir:
Ríkisstjórn Norðurbandalagsins og Fimmstjörnuhreyfingarinnar á Ítalíu hefur komið sér saman um nýtt fjárlagafrumvarp sem flokkarnir búast við að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykki. Ef stjórnvöld á Ítalíu ná ekki sannfæra að Evrópusambandið um ágæti nýrra fjárlaga fyrir áramót á landið yfir höfði sér fordæmalausar refsiaðgerðir. Ingvar Þór Björnson sagði frá.
Fjallað um ástandið í Ungverjalandi og rætt við Grím Axelsson sem búsettur er í miðborg Búdapest, þar sem nýrri vinnulöggjöf er mótmælt harðlega daglega. Kristján Sigurjónsson.
Sagt verður frá hugsanlegum aðgerðum bresku stjórnarinnar og Evrópusambandsins sem af alvöru undirbúa samningslaust Brexit. Sigrún Davíðsdóttir.
Samninganefnd Eflingar tekur afstöðu til þess á morgun hvort félagið myndi bandalag með VR í kjaraviðræðunum og hætti samflot
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners