Þjóðskrá hefur fellt úr gildi skráningar 12 af þeim 18 sem fluttu lögheimi sitt í Árneshrepp. Að auki hefur einn tilkynnt að hann hafi skráð flutning fyrir mistök. Þjóðskrá hefur ekki lokið rannsókn á sex tilkynningum um lögheimilsflutninga í hreppinn.
Í það minnsta tíu eru látin eftir skotárás í skóla í Santa Fe í Texas í Bandaríkjunum.
Karlmaður var í dag dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot og brot gegn nálgunarbanni gagvart ungum dreng. Verjandi mannsins segir að dómnum verði áfrýjað.
Ný þróunarmiðstöð heilsugæslu tekur til starfa á næstunni. Hún á að leiða faglega þróun allrar heilsugæslu í landinu.
Í Speglinum var sagt ítarlega frá hinu konunglega brúðkaupi sem verður í Bretlandi á morgun.
Ópólitískir bæjarstjórar á undanhaldi. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og talar við Evu Marin Hlynsdóttur stjórnmálafræðing.
Arabaguðinn Mohamed Salah. Pálmi Jónasson segir frá Salah leikmanni Liverpool sem á miklu gengi að fagna um þessar mundir.