Forsætisráðherra segir að íslensk stjórnvöld taki dóm Mannréttindadómstóls Evrópu alvarlega. Hún segir mikilvægt að þingið taki sér svigrúm til að reifa ólík sjónarmið, eyða óvissu og finna farsæla lausn, bæði fyrir dómskerfið og almenning í landinu. Forsætisráðherra flytur Alþingi skýrslu um viðbrögð stjórnvalda við dómi Mannréttindadómstólsins. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir tók saman.
Starfsemi 40 hótela lamast og rútubílstjórar leggja niður vinnu á föstudaginn ef ekki tekst að semja fyrir þann tíma. Á sama tíma undirbúa iðnaðarmenn og Starfsgreinasambandið verkföll. Arnar Páll Hauksson ræddi við Halldór Benjamín Þorbergsson.
Formaður Félags hópferðaleyfishafa segir að boðuð verkföll ýti undir svarta starfsemi.
Forseti Mósambíkur óttast að yfir eitt þúsund hafi farist þegar fellibylur fór yfir miðhéruð landsins í síðustu viku. Borgin Beira er í rúst eftir óveðrið.
Risastór loftsteinn sprakk yfir Beringssundi á milli Alaska og Rússlands fyrir þremur mánuðum. Orkan sem losnaði úr læðingi við sprenginguna var tífalt meiri en í kjarnorkusprengjunni sem var sprengd í Hiroshima í lok síðari heimsstyrjaldar.
Þess er vænst að innan nokkurra ára geti samstarfsverkefni fjögurra stofnana gert Íslendingum kleift að skipuleggja landnýtingu betur. Þá verður hægt að fylgjast með auðlindum og stýra nýtingu miðað við ástand þeirra.
Stjórnarformaður Lýðháskólans á Flateyri fagnar nýju frumvarpi um lýðskóla. Með tilkomu þess verði hægt að gera langtímarekstrarsamninga við skólann.
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA miðstöðvarinnar, þarf aðstoð allan sólarhringinn. Það hefur borgin viðurkennt. Fjármagnið sem hann fær nægir þó ekki til að tryggja þessa aðstoð. Stundum þarf Rúnar, sem er með hálsmænuskaða og þarf aðstoð við flesta hluti, að vera einn á nóttunni. Hann segir að þá sé erfitt að horfa á eftir aðstoðarmanninum á kvöldin. Samband sveitarfélaga er ekki á því að laun aðstoðarmanna þurfi að vera þau sömu alls staðar á landinu. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Rúnar Björn Herrera Þorkelsson.
Umsjónarmaður Ásrún Brynja Ingvarsdóttir. Tæknimaður Davíð Berndsen.