Spegillinn

Spegillinn 19. febrúar 2019


Listen Later

Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Davíð Berndsen
Skattbyrði lágtekjufólks lækkar um tvö prósentustig og barnabætur hækka samkvæmt tillögum sem fjármálaráðherra kynnti í dag.
Alþýðusambandið hafnar skattatillögum ríkisstjórnarinnar. Þær valdi vonbrigðum og nægi ekki til að liðka fyrir kjarasamningum. Flest bendir til þess að undirbúningur verkfalla hefjist á næstu dögum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að hún hefði viljað að vinna við heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar hefði gengið hraðar.
Ný skýrsla Amnesty International um málefni intersex fólks hér á landi er gagnrýnin á stjórnvöld og heilbrigðiskerfið. Fólk mæti hindrunum í leit að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og það stofni líkamlegri og andlegri heilsu í hættu.
Talið er að allt að tólf skíðamenn hafi lent í snjóflóði sem féll í Sviss í dag.
Íslenskur maður sem reyndist smitaður af mislingum leitaði á heilsugæsluna í Neskaupstað í síðustu viku vegna veikinda. Maðurinn var sendur með sjúkraflugi til Reykjavíkur, til að tryggja að hann fengi viðeigandi meðferð, en einnig til að tryggja öryggi annarra. Hann var settur í einangrun á Landspítalanum og er nú á batavegi.
Spænska ríkisstjórnin hefur veitt fjölskyldu Franciscos Francos, fyrrverandi einræðisherra Spánar, tveggja vikna frest til þess að ákveða hvar hann skuli hvíla eftir að jarðneskar hans verða fjarlægðar úr minningargrafreit um þá hermenn sem létust í spænska borgarastríðinu.
Spáð er leiðindaveðri víða um land í nótt og í fyrramálið.
Lengri umfjallanir:
Eftir fund ríkisstjórnarinnar í dag bendir flest til þess að undirbúningur verkfalla hefjist á næstu dögum. Formenn verkalýðsfélaga innan Alþýðusambandins telja tillögur ríkisstjórnarinnar í skattamálum vonbrigði og að þær verði ekki til þess að liðka fyrir lausn kjarasamninga. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. forseti ASÍ, gekk af fundi ríkisstjórnarinnar í dag vegna þess að hann er ósáttur við framlag hennar í skattamálum.
Eftir að Samtök atvinnulífsins höfnuðu gagntilboði Eflingar, VR og Verkalýðsfélaganna á Akranesi og í Grindavík voru bundnar vonir við útspil ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir samningum. Gagntilboðið hljóðaði upp á að mánaðarlaun hækkuðu um 37.500 krónur á mánuði árlega í þrjú ár og að á síðasta samningsárinu yrðu lágmarklaun eða tekjutryggingin komin í 400 þúsund krónur. Vilhjálmur segir að staðan í kjaraviðræðum hafi verið alvarleg en nú séu hún grafalvarleg. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að hún hafi ekki gert sé miklar
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners