Varnarmálaráðherra Tyrklands, , staðfesti í dag við Guðlaug Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, að Haukur Hilmarsson sé ekki í haldi tyrkneskra stjórnvalda
Samkomulag hefur náðst um mörg atriði milli breskra stjórnvalda og Evrópusambandsins um Brexit, - brotthvarf Bretlands úr sambandinu
Mikill áhugi Rússa á Íslandi í tengslum við þátttökuna í heimsmeistarsmótinu í knattspyrnu mun ekki duga til að koma íslenskum fiski aftur á markað í Rússlandi. Þar þarf pólitískar ákvarðanir segir formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Mun auðveldara gæti orðið að reka verslun í dreifbýli eða á sumum fámennari stöðum á landinu verði tillögur í drögum að nýrri stefnumótandi byggðaáætlun að veruleika. Þá yrði einnig opnað á þann möguleika að styrkja einstaklinga til að byggja íbúðarhús í byggðum sem standa höllum fæti.
Tíu flóttamenn frá Úganda komu til Mosfellsbæjar í dag
Kristján Sigurjónsson talaði við Halldór Björnsson um lofstlagsbreytingar og áhrifa þeirra hér á landi og á heimsvísu.
Arnar Páll Hauksson talaði við Guðmund Ragnarsson, formann Félags vélstjóra og málmtæknimanna, sem situr í stjórn Gildis lífeyrissjóðs, Hann lagði til að ofurlaunum forstjóra N1 verði mótmælt með því hreinlega að selja hlut sjóðsins í N1.
Sigrún Davíðsdóttir fjallaði um gagnafyrirtækið Cambridge Analytica sem vann fyrir samtök sem studdu úrgöngu Breta fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 2016 og voru einnig ráðgjafi kosningaliðs Donald Trumps nú Bandaríkjaforseta.