Spegillinn

Spegillinn 19. september 2019


Listen Later

Hjón sem misstu barn sitt vegna læknamistaka á Landspítalanum hafa stefnt íslenska ríkinu til greiðslu miska- og skaðabóta.
Ekki er réttlætanlegt að Erla Bolladóttir fái bætur fyrir Guðmundar- og Geirfinnsmálið nema hún verði fyrst sýknuð, að mati svonefndra Klúbbmanna, sem hafa ritað forsætisráðherra bréf þess efnis.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send eftir þremur ferðamönnum sem urðu innlyksa við Langavatn þegar vegur fór í sundur í vatnavöxtum. Mikil úrkoma hefur gengið yfir suðvesturhluta landsins í dag.
Samningar við opinbera starfsmenn virðast ekki vera í sjónmáli. Tæplega hálft ár er nú liðið frá því að viðræður hófust.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir formaður þingflokks Vinstri grænna segir varhugavert að opna fyrir netverslun með áfengi hér á landi og óttast að það hafi slæm áhrif á lýðheilsu.
Óvíst er hvenær samningar takast á opinbera vinnumarkaðnum. Samningar hafa verið lausir í rúma fimm mánuði og svo virðist sem enn hafi ekki verið samið um veigamikil atriði. Ekki hefur verið samið um launahækkanir né heldur um hvernig staðið verður að styttingu vinnuvikunnar. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir formaður þingflokks Vinstri grænna segir varhugavert að opna fyrir netverslun með áfengi hér á landi og óttast að það hafi slæm áhrif á lýðheilsu. Heimilt verður að kaupa áfengi í íslenskum netverslunum samkvæmt frumvarpi sem dómsmálaráðherra hyggst leggja fram á næsta ári. Erlendar netverslanir hafa hingað til haft leyfi til að selja áfengi hér á landi. Verði frumvarp dómsmálaráðherra að lögum geta íslenskar netverslanir boðið sömu þjónustu án aðkomu ÁTVR. Áfengið er þá sent heim að dyrum en kaupandi greiðir virðisaukaskatt og áfengisgjald af sendingunni. Þá er enn fremur lagt til að fyrirtækjum verði heimilt að selja eigin framleiðslu í brugghúsi eða á framleiðslustað. Þorsteinn Víglundsson þingmaður Viðreisnar segir að með þessu sé í raun verið að afnema einkaleyfi ÁTVR. Höskuldur Kári Schram ræddi við Bjarkey og Þorstein
Um síðustu helgi voru enn átök í Hong Kong. Það var ekki í fyrsta skipti að hópur mótmælenda safnaðist saman við bresku ræðismannsskrifstofuna þar. Í Bretlandi er ákaft rætt hvort Bretar eigi að veita íbúum í þessari fyrrum nýlendu sinni bresk vegabréf með búseturétti en ekki aðeins með kosningarétti eins og nú er. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

88 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

8 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

77 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

9 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners