Forsætisráðherra segir að markmið viðræðna ríkisstjórnar við aðila vinnumarkaðarins sé að kortleggja þær hindranir sem koma í veg fyrir að hægt sé að sammælast um að hefja samtal um nýtt íslenskt vinnumarkaðsmódel.
Skipaður hefur verið starfshópur sem á að leggja fram tillögur um breytingar á Kjararáði. Hann á líka að fara yfir fyrri úrskurði ráðsins.
Vitað er um á þriðja tug sprautufíkla á Akureyri. Verkefni til að minnka skaðann, sem hófst í ársbyrjun, hefur strax borið árangur.
Vél frá breskri ferðaskrifstofu sem átti að fljúga beint til Akureyri í dag varð að lenda í Keflavík vegna veðurs. Þetta gerðist líka á mánudag þegar vél frá sama flugfélagi gat ekki lent fyrir norðan.
Donald Trump hefur setið eitt ár á forsetastóli og hafa leikið um hann stríðir vindar. Hann glímir nú við þingið um greiðsluheimild fyrir hið opinbera.
Vill viðræður um íslenskt vinnumarkaðsmódel. Arnar Páll Hauksson ræðir við Katrínu Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Ár Trumps á forsetastóli. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá.
Arðgreiðslu bankanna. Sigrún Davíðsdóttir talar við Jóns Þór Sturluson aðstoðarforstjóra Fjármálaeftirlitsins.