Spegillinn 19.12.2018
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
Útilokað er að hægt verði að ganga frá kjarasamningum fyrir áramót segir forseti Alþýðusambandsins. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ótímabært og óskynsamlegt að vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara eins og VR og fleiri félög íhuga nú. Höskuldur Kári Schram ræðir við Halldór Benjamín Þorbergsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Drífu Snædal forseta Alþýðusambandsins.
Búast má við töluverðri röskun á efnahagsstarfsemi í Bretlandi, fari svo að enginn viðskiptasamningur verði til staðar þegar Bretar yfirgefa Evrópusambandið. Þetta segir Jón Daníelson, prófessor í hagfræði við London School of Economics.
Ekkert bendir til þess að aðrir en Bára Halldórsdóttir hafi átt hlut að máli þegar samtöl sex þingmanna voru tekin upp á Klaustri í nóvember, að mati dómara. Hann hafnaði í dag kröfu þingmannanna um að fram færi vitnaleiðslumál fyrir dómi.
Bandaríkjamenn ætla að draga allt herlið sitt með hraði frá Sýrlandi. Trump Bandaríkjaforseti segir að búið sé að yfirbuga hryðjuverkasamtökin Íslamska ríkið sem hafi verið eina ástæðan fyrir því að hafa herliðið í Sýrlandi Kristján Róbert Kristjánsson sagði frá
Öryrkjar og aldraðir verða ekki rukkaðir um komugjöld á heilsugæslustöðvar og hjá heimilislæknum frá og með áramótum né borga fyrir læknisvitjanir.
Lengra efni:
Þúsund sinnum meira blý reyndist vera í einu sýni en hverju hinna, af tuttugu sýnum sem Umhverfisstofnun tók úr flugeldum í byrjun ársins. Sýnið var úr kúlublysi og hefur sala á því verið stöðvuð. Rætt við Þorstein Jóhannsson og Eirík Þóri Baldursson, sérfræðinga hjá Umhverfisstofnun,
Ekki mun takast að ná samkomulagi um nýja ríkisstjórn í Svíþjóð fyrir jól. Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, greindi frá því á blaðamannafundi í morgun að ekki verði greitt atkvæði um næsta forsætisráðherra fyrr en 16. janúar. Ingvar Þór Björnsson sagði frá.
Þó svo takist að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og standa við Parísarsamkomulagið mun Grænlandsjökull hverfa. Jöklafræðingur segir að spurningin sé bara hve hratt þetta gerist. Arnar Páll Hauksson sagði frá