Spegillinn, 19. febrúar 2018.
Norðlendingar eru í viðbragðsstöðu vegna jarðskjálfta. Tugir skjálfta sem eru stærri en þrír hafa orðið við Grímsey í dag eftir tvo stóra í morgun. Um miðjan dag var lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálfta úti fyrir Norðurlandi.
Íslensk yfirvöld hafa óskað þess formlega að íslenska lögreglan taki yfir rannsókn á máli íslenskrar konu sem liggur slösuð á sjúkrahúsi á Spáni.
Finnsk kona, sem hefur dvalið sjö mánuði í Kvennaathvarfinu með tveggja ára son sinn, segir ómannúðlegt hve langan tíma hefur tekið að leysa úr forræðisdeilu hennar við íslenskan barnsföður.
Að minnsta kosti níutíu Íslendingar hafa greinst með banvænt fleiðurþekjukrabbamein. Þar af 45 á árunum 2005 til 2017. Sökudólgurinn er asbest.
Skiptar skoðanir eru um hvort rétt sé að segja upp kjarasamningum á almenna vinnumarkaðinum vegna forsendubrests. Ákvörðun verður að ligga fyrir eftir rúma viku.
Skjálftahrina í Grímsey hefur staðið frá því í janúar og á annað þúsund skjálfta orðið þar. Tveir stórir í morgun 4,9 og 5,2. Bjarni Magnússon fyrrverandi hreppsstjóri segir ónot í fólki en aldri hafi orðið skemmdir vegna skjálfta í Grímsey. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.
Það styttist í að ákveðið verði hvort forsendur síðustu almennu kjarasamninga hafa haldið eða hvort samningum verður sagt upp. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Asbest var vinsælt byggingarefni en því fylgdi skaði sem enn er að koma í ljós. Tugir Íslendinga hafa fengið fleiðurþekjukrabbamein af völdum asbests en notkun þess var hér mjög mikil allt fram til banns fyrir rúmlega þrjátíu árum. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og ræðir við Kristinn Tómasson yfirlækni hjá Vinnueftirlitinu og Auðun Ásberg Gunnarsson meistara í bifvélavirkjun.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir