Forsætisráðherra segir að staðan á vinnumarkaði sé grafalvarleg. Ekki sé tímabært á þessu stigi að ræða um að setja lög á verkföll. Iðnaðarmenn bættust í dag í hóp þeirra sem hafa slitið viðræðum við atvinnurekendur.
Öryrkjabandalagið undirbýr málshöfðun vegna krónu á móti krónu skerðingar á bótum öryrkja. Formaður bandalagsins segir að öryrkjum sé ofboðið.
Amma barns sem nýlega var greint með banvænan sjúkdóm segir hræðilegt að hugsa til þess að kjaftasögur um sölu brjóstamjólkur til kraftlyftingamanna komi í veg fyrir að konur vilji gefa barninu brjóstamjólk. Hún gagnrýnir fréttaflutning af málinu harðlega.
Forsætisráðherra Bretlands segir að Bretar séu komnir í ógöngur vegna fyrirhugaðrar útgöngu úr Evrópusambandinu eftir tíu daga. Hún ætlar að óska skriflega eftir frestun til júníloka.
Hart var tekist á á opnum fundi Miðbæjarfélagsins í Reykjavík í dag en á fundinum kynntu verslunareigendur undirskriftalista þar sem því er mótmælt að Laugavegi, Bankastræti og Skólavörðustíg verði lokað fyrir bílaumferð.
Loðnuvertíðin hefur brugðist og ekki í fyrsta sinn. Í síðustu viku gaf Hafrannsóknastofnun það út að allri leit að loðnu fyrir þessa vertíð yrði hætt og enginn loðnukvóti gefinn út. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri hjá stofnuninni, segir að loðnunnar hafi sennilega aldrei verið leitað jafn gaumgæfilega og nú. Loðna er annar mikilvægasti nytjastofn okkar og efnahagsleg áhrif loðnubrestsins því veruleg. En það er ekki nóg með það. Loðnan er líka ein mikilvægasta fæða aðalnytjastofns Íslendinga, þorsksins sem og grálúðu, ufsa og fleiri tegunda. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman.
Forsætisráðherra Nýja Sjálands heitir því að tillögur ríkisstjórnar landsins um endurbætur á byssulöggjöfinni verði kynntar áður en þingið kemur aftur saman á mánudag. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir tók saman.
Skemmtiferðaskipum sem sigla á norðurslóðum hefur fjölgað mjög mikið á undanförnum árum. Þó að ekki séu miklar líkur á slysum er nauðsynlegt að hægt sé að bregðast við ef slys verður. Á næsta ári stendur Landhelgisgæslan fyrir æfingu, sem beinist að björgun og leit og einnig viðbrögðum við mengunarslysi. Arnar Páll Hauksson talaði við Auðun Kristinsson.
Umsjónarmaður: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason