Spegillinn

Spegillinn 19.október


Listen Later

Seðlabankastjóri segir að ekki þurfi að hafa áhyggjur af þróun gengis krónunnar að undanförnu heldur því, hvernig okkur tekst að fóta okkur í nýju jafnvægi í þjóðarbúinu.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að stjórnvöld í Sádí Arabíu verði að sæta ábyrgð, komi í ljós að þau hafi staðið fyrir morðinu á sádí arabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi.
Landsréttur staðfesti í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni sem beitti fimm ára dóttur sína kynferðis- ofbeldi
Sonja Ýr Þorbergsdóttir var í dag kjörin nýr formaður BSRB. Tvö voru í famboði og hlaut hún nær öll atkvæðin.
Ríkisfáni Íslands var dreginn að húni á bandarísku herskipi sem liggur í höfn í Reykjavík. Það er bannað samkvæmt fánalögum.
Árum saman hafa fjárfestar með aðstoð banka og lögmanna mergsogið ríkissjóði Evrópulanda og svikið út andvirði þúsunda milljarða króna í endurgreiðslur í að minnsta kosti tíu löndum, mest í Þýskalandi, Belgíu og Frakklandi. Rúmlega helmingur þess hefur verið svikinn út í Þýskalandi samkvæmt fréttum sem birst hafa og eru afrakstur samstarfs rannsókna blaða- og fréttamanna á sautján evrópskum miðlum, samhæfing rannsóknarinnar var í höndum þýska miðilsins Correctiv. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá.
Hundrað ár eru liðin frá því spænska veikin barst til Reykjavíkur með farþegaskipunum Botnía og Willemoes. Þremur vikum síðar var veikin í algleymingi í borginni. Spænska veikin er talin mannskæðasta farsótt sem nokkurn tíman hefur geisað, á hálfu ári dró faraldurinn á bilinu 50 til 100 milljónir manna til dauða. Þrátt nafngiftina rekur hún ekki uppruna sinn til Spánar. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður Ragnar Gunnarsson
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners