Spegillinn

Spegillinn 1.mars 2021


Listen Later

Spegillinn 1.mars 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson og Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred
Gervihnattamyndir af Reykjanesskaga og ný gögn sýna umtalsverða færslu á landi sem ekki verði bara skýrð með jarðskjálftum og benda til þessað kvikugangur sé að myndast þar sem mesta skjálftavirkni hefur verið síðustu daga, það er við Keili. Kristín Jónsdóttir hópstjóri Náttúruvárvaktar á Veðurstofu Íslands segir að því sé mikilvægt að draga fram sviðsmynd um gos. Hraun frá því hefði ekki áhrif í byggð. Ekki er talin ástæða til að breyta viðbúnaði almannavarna en fylgst er grannt með svæðinu.
Jarðskjálfti 5,1 að stærð varð um klukkan hálf fimm í dag á Reykjanesskaga. Þetta er þriðji stærsti skjálftinn i hrinunni síðan hún hófst á miðvikudag. 1800 skjálftar hafa mælst frá miðnætti, 23 skjálftar að stærð 3 eða stærri og um 3 skjálftar eru 4 að stærð eða stærri.
Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi segir verkefni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna að bólusetja íbúa um 90 fátækra landa í heiminum gegn COVID-19 sé tvímælalaust stærsta bólusetningarverkefni sögunnar
Framleiðsluáætlun kórónuveirubóluefnaframleiðandans Janssen hefur ekki gengið eftir og því óvíst hvenær bóluefnið kemur hingað til lands.
Forsætisráðherra Armeníu kveðst tilbúinn að boða til þingkosninga verði það til þess að leysa úr pólitískri kreppu sem þar hefur ríkt síðustu mánuði.
Lengri umfjöllun:
800 ár eru liðin frá síðustu eldsumbrotum á Reykjanesskaga og jarðsagan segir að hann sé kominn á tíma. Eldfjallfræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur útbúið kort sem sýna hugsanlega hraunrennslisstefnu ef til goss kæmi. Þorvaldur Þórðarson prófessor í í eldfjalla- og bergfræði við Háskóla Íslands segir mjög ólíklegt að eldgos fylgi núverandi jarðhræringum á Reykjanesskaga, það sé þó ekki útilokað. Spegillinn ræddi við Þorvald í dag, en það skal tekið fram að viðtalið var tekið um miðjan dag, áður en stöðufundur almannavarna var haldinn sem við sögðum frá í fréttahluta Spegilssins. Þar kom fram að
Vísindaráð hafi farið yfir gervihnattamyndir (InSAR) sem bárust í dag, en úrvinnsla úr þeim myndum sýna meiri færslu en áður hefur orðið vart við á svæðinu síðustu daga. Líklegasta skýringin er sú að kvikugangur sé að myndast undir því svæði þar sem mesta jarðskjálftavirknin hefur verið síðustu daga að því er segir í tilkynningu frá Vísindaráði og almannavörnum. Kristján Sigurjónsson talaði við Þorvald.
Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, Birna Þórarinsdóttir, segir verkefni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna að bólusetja íbúa um 90 fátækra land
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners