Fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu, segir að afgreiðsla velferðarráðuneytisins á máli hans sé ekki í samræmi við góða stjórnsýsluhætti og beri vott um vanþekkingu.
Lögregla hefur ekki til rannsóknar meint kynferðisbrot föður tveggja stúlkna í Hafnarfirði, sem hefur verið til umfjöllunar undanfarið vegna afskipta fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu.
Þingmenn hvöttu forseta Alþingis í dag til að efla stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vegna barnaverndarmála síðustu daga.
Lágt fiskverð er talið helsta ástæða þess að mun færri bátar hófu strandveiðar nú en síðastliðið vor.
Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, hafa verið lögð niður.
Vinstri græn kynntu í dag stefnu sína fyrir borgarstjórnarkosningarnar síðar í mánuðinum.
Írska þjóðin er klofin í afstöðu sinni til fóstureyðinga, sem eru bannaðar í landinu. Þjóðaratkvæðagreiðsla um að rýmka fóstureyðingalöggjöfina verður í lok maí.
Bragi Guðbrandsson. Viðbrögð við niðurstöðu ráðuneytisins. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Braga Guðbrandsson.
Fórtueeyðingar á írlandi. Kristján Sigurjónsson segir frá.