Héraðsdómur Reykjaness telur Isavia ekki mega halda flugvél ALC til tryggingar tveggja milljarða króna skulda WOW air. Lögmaður ALC íhugar að skjóta kvörtun til eftirlitsstofnunar EFTA vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar til WOW.
Smálánafyrirtæki sem bjóða lán hér á landi brjóta íslensk lög. Þetta segir ráðherra neytendamála sem vonast til þess að geta stöðvað starfsemi þeirra með frumvarpi í haust.
Hver Íslendingur losaði svo mikið af koltvísýringi vegna flugs árið 2017 að það jafngilti því að hver og einn hefði flogið þrettán sinnum aðra leiðina til Parísar það ár. Verð á losunaheimildum hefur nú náð sögulegu hámarki og getur haft áhrif á rekstur flugfélaga.
Forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sakar dómsmálaráðherra landsins um að hafa logið að þinginu. Með því hafi hann gerst brotlegur við lög.
Margrét Helga Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir að hver Íslendingur hafi losað 2,33 tonn af koltvísýringi bara vegna flugs árið 2017. Það jafngildir því að hver Íslendingur hafi flogið tæplega þrettán sinnum aðra leiðina til Parísar það ár. Verð á losunaheimildum hefur nú náð sögulegu hámarki og getur það haft áhrif á rekstur flugfélaga.
Margrét Helga tekur þátt í alþjóðsamstarfi og þarf oft að fara til útlanda.
Formaður velferðarnefndar Alþingis segir að það eigi að leiðrétta bætur til öryrkja strax vegna skerts búsetuhlutfalls. Tæplega 1200 öryrkjar eiga rétt á leiðréttingu. Arnar Páll talar við Halldóru Mogensen
Margrét Helga Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir að hver Íslendingur hafi losað 2,33 tonn af koltvísýringi bara vegna flugs árið 2017. Það jafngildir því að hver Íslendingur hafi flogið tæplega þrettán sinnum aðra leiðina til Parísar það ár. Verð á losunaheimildum hefur nú náð sögulegu hámarki og getur það haft áhrif á rekstur flugfélaga.
Margrét Helga tekur þátt í alþjóðsamstarfi og þarf oft að fara til útlanda. Bergljót Baldursdóttir talar við Margréti Helgu Guðmundsdóttur.
Frjókorn eru farin að svífa um loftið, elri er þegar farið að blómstra og dreifa frjóum sínum og fólk sem er með birkiofnæmi getur fundið fyrir ofnæmiseinkennum. Á vef Náttúrufræðistofnunar er fjallað um elri sem er sömu ættar og birki og því með sömu ofnæmisvaka en blómstrar miklu fyrr, mánaðamótin mars apríl. Lyng- og víðifrjó mælast líka snemma á vorin en eru ekki eins skæð þeim sem eru með frjókornaofnæmi því frjó þeirra dreifast helst með skordýrum. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá.