Spegillinn 20. desember 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Sóttvarnalæknir leggur til við heilbrigðisráðherra að taka upp tuttugu manna samkomutakmörkun og að skólahald hefjist seinna eftir jólafrí til þess að stemma stigu við fjölgun kórónuveirusmita.
Þrátt fyrir að vera veikara er omikron-afbrigði kórónuveirunnar erfiðara og verra viðgangs en delta-afbrigðið. Þetta segir prófessor í tölvunarfræðum við Háskóla Íslands.
Yfirlæknir á covid-göngudeild Landspítalans segir starfsfólk glíma við mikið álag, á sama tíma og búist er við enn meiri fjölgun sjúklinga vegna metfjölda smita.
Akureyrarbær hefur tilkynnt að ekki verði haldnar áramótabrennur á vegum bæjarins í ár frekar en í fyrra.
Hlutabréf um allan heim, þar með talið á Íslandi, lækkuðu í verði í dag sökum ótta fjárfesta við útbreiðslu omíkron-afbrigðisins.
Hjálpræðisherinn hefur neyðst til þess að fella niður jólaboð sitt á aðfangadag. Rúmlega 300 gestir og sjálfboðaliðar höfðu skráð sig til leiks.
Lögregla hefur litlar vísbendingar fengið í leitinni að Almari Yngva Garðarssyni, sem ekkert hefur spurst til síðan aðfaranótt sunnudags.
Aldrei hafa fleiri bækur verið prentaðar erlendis eins og fyrir þessi jól. Formaður stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum segir þróunina ekki góða fyrir íslenskan prentiðnað.
Elsta hluta grunnskólans á Hofsósi hefur verið lokað fyrir kennslu eftir að vísbendingar um myglu komu þar upp. Beðið er niðurstöðu frekari rannsókna til að hægt sé að meta hversu stórtækar aðgerðir þarf að ráðast í.
Ekki verður gert hlé á keppni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um jól og áramót vegna fjölgunar kórónuveirusmita, en mörgum leikjum hefur verið frestað að undanförnu. Þetta var ákveðið eftir fundarhöld í dag.
Lengri umfjöllun:
Metfjöldi kórónuveirusmita greindist hér innanlands í gær, eða 220. Bæði Delta og ómikronafbrigðin greindust. Veldisvöxtur hefur verið í ómikrónsmitum í Danmörku og Bretlandi undanfarna daga. Tvöföldunartíminn er einungis rúmir tveir dagar, sem er hraðari tími en þekkst hefur í fyrri afbrigðum. Spegillinn ræddi í dag við Pál Melsted prófessor í tölvunarfræðum við Háskóla Íslands og deildarstjóra hjá Íslenskri erfðagreiningu. Hann fæst meðal annars við lífupplýsingafræði og hefur kynnt sér útbreiðslu ómikrónafbrgðisins í heiminum undanfarna daga. Kristján Sigurjónsson talar við Pál
Ísland gæti orðið fyrsta landið í Evrópu til þess að uppræta ríkisfangsleysi með öllu. Þetta er mat Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Hér dvelja nú 52 manneskjur án ríkisfangs. Elisabeth Has