Spegillinn

Spegillinn 20. janúar 2022


Listen Later

Spegillinn 20. janúar 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Smitum fjölgar enn hjá íslenska karlalandsliðinu á Evrópumótinu í handbolta í Búdapest. Sex leikmenn eru úr leik fyrir viðureignina við Dani í kvöld.
Frelsið bítur í skottið á sér, sagði heilbrigðisráðherra þegar hann varaði við því að of geyst væri ráðist í afléttingu sóttvarnaráðstafana. Þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði löngu kominn tíma til að stjórnvöld leiddu þjóðina út úr ógöngum.
Þrátt fyrir mikinn fjölda smita í samfélaginu er þróun mála á Landsspítalanum ánægjuleg segir sóttvarnarlæknir.
Andstaða fyrirtækis á Flateyri varð til þess að fiskeldisfyrirtækið Arctic Fish ákvað að byggja laxasláturhús í Bolungarvík. Bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ segir þetta vonbrigði.
Í janúar á næsta ári taka í gildi lög um bann við urðun á lífrænum úrgangi. Akureyrarbær hefur unnið moltu úr lífrænum úrgangi í rúman áratug en þrátt fyrir það þarf sífellt að minna á mikilvægi flokkunarinnar og stendur nú yfir átak því til áminningar.
Það spáir vonskuveðri á vestan- og norðanverðu landinu seint í kvöld og gul- eða appelsínugul viðvörun er í gildi frá miðnætti, fram eftir degi á morgun og alveg fram á aðfaranótt laugardags.
Lengri umfjöllun:
Undanfarnar kosningar hefur reynst erfitt að manna sveitarstjórnir sums staðar, jafnvel í þokkalega stórum sveitarfélögum og Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði við HÍ býst við því að svo gæti farið líka í ár og mannaskipti í sveitarstjórnum verði jafnvel 65%. Eftir um fjóra mánuði, síðasta laugardaginn í maí, þann 28. verður kosið til sveitarstjórna í um öllum sveitarfélögum landsins. Þau eru mörg og misfjölmenn, frá því minnsta með um 40 íbúa, upp í höfuðborgina með um 130 þúsund. Sveitarstjórnarstigið er eitt en sveitarfélögin næstum jafn ólík og þau eru mörg. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Evu Marín.
Sprengigosið í Tonga eyjum í Kyrrahafi er hið stærsta á jörðinni síðastliðin 30 ár að mati jarðvísindamanna. Þegar gosið hófst með gríðarlegum hvelli á laugardag fylgdi flóðbylgja og mikið óskufall sem hefur haft mikil áhrif á daglegt líf íbúa eyríkisins. Þeir eru einangraðir, öll samskipti við umheiminn eru erfið og óttast er að marga daga og vikur taki að rjúfa þá einangrun að fullu. Á meðan er óljósar fréttir að fá af líðan þeirra og þörf fyrir hjálpargögn. Þau eru þó farin að berast því flugvélar frá bæði Ástralíu og Nýja Sjálandi hafa á síðasta sólarhring lent á stærstu eyjunni Tona-ga-tapu með neyðarbúnað. Kristján Sigurjónsson segir frá sögu og íbúum eyjanna.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners