Spegillinn

Spegillinn 20. júní 2022


Listen Later

Spegillinn 20. júní 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Á fjórða hundrað íbúðir fyrir efnaminni einstaklinga bætast á leigumarkað eftir nýjustu úthlutun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Tæplega helmingur þeirra verður á landsbyggðinni. Framboð annar þó ekki eftirspurn.
Kjósa átti nýjan íslenskan dómara við Mannréttindadómstól Evrópu í vikunni. Ekki verður af því þar sem tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Hefja þarf umsóknarferlið að nýju.
Fulltrúar Finnlands, Svíþjóðar og Tyrklands hittust í dag vegna aðildarumsóknar Finna og Svía að Atlantshafsbandalaginu.
Tyrkland hefur eitt aðildarríkja lagst gegn aðild Finnlands og Svíþjóðar og sagt ríkin skjóta skjólshúsi yfir hryðjuverkamenn.
Ný lög frá Alþingi eiga eftir að hjálpa þolendum ofbeldis í sambandi að komast út úr hjónabandi, segir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Þó megi velta því upp hvort ganga hefði átt lengra í löggjöfinni.
Hópur starfandi kennara um allt land hefur sent áskorun til sveitarstjórna um að setja menntun til sjálfbærni í forgang. Hún mæti afgangi en ætti, að mati kennaranna, að vera kjarninn í skólastarfinu.
Fjallað um hugsanlega tilfinningasemi gervigreindar.
Lengri umfjöllun:
Frá árinu 2016, þegar lög um almennar íbúðir tóku gildi hafa ríki og sveitarfélög úthlutað 30 milljörðum í gegnum stofnframlög til uppbyggingar á yfir 3.000 leiguíbúðum víðs vegar um landið. Íbúðirnar þurfa að uppfylla skilyrði um hagkvæmni og eru ætlaðar fyrir tekjulága og eignalitla. En eru framlögin nú þegar farin að hafa áhrif á stöðu tekjulágra á leigumarkaði? Sigrún Helga Kristjánsdóttir er sérfræðingur í teymi stofnframlaga hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hafdís Helga Helgadóttir ræðir við hana og Jón Björn Hákonarson bæjarstjóra Fjarðabyggðar.
"Þið hafið orðið vitni að sögulegum viðburði. Ekki aðeins í Kólumbíu, heldur líka í Suður Ameríku og heiminum öllum". Svona komst Gustavo Petro nýkjörinn forseti Kólumbíu að orði í sigurræðu sinni í gær. Sigurinn markar tímamót í stjórnmálum landsins, en aldrei áður hefur vinstri sinnaður forseti verið við völd í Kólumbíu. Petro bar naumlega sigurorð af mótframbjóðanda sínum í seinni umferð kosninganna, milljarðamæringnum Rodolfo Hernandez, eftir mjög jafna og spennandi kosningabáráttu. Kristján Sigurjónsson ræðir við Dylan Herrera, kólumbískan stjórnmálafræðing sem búsettur er á Íslandi og fylgst hefur vel með stjórnmálum í heimalandi sínu. Hann er reyndar staddur í Bógota höfuðborg Kólumbíu og varð því vitni að lokasprettinum í kosningabaráttunni og viðbrögðunum
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners