Þó að blikur séu á lofti hjá íslensku flugfélögunum hefur ekki komið til tals að ríkið grípi inn í stöðuna með neinum hætti.
Skýrar vísbendingar eru nú um að það dragi verulega úr aukningu einkaneyslu heimilanna og lítur allt út fyrir að í ár verði vöxturinn sá minnsti frá árinu 2014.
Alls kyns fíkniefni ganga kaupum og sölum í tugum lokaðra Facebook-hópa hér á landi. Meðlimum slíkra hópa fjölgar og fíkniefnasala færist í síauknum mæli á netið.
Það eru börn af um eitthundrað þjóðernum í grunnskólum Reykjavíkurborgar og tungumálin sem börnin tala eru minnst 70. Stórum hópi nemenda með erlendan bakgrunn gengur illa að ná tökum á íslensku. Við fjöllum um menntun barna af erlendum uppruna.
Umsjónarmaður Spegilsins var Arnhildur Hálfdánardóttir.
Tæknimaður var Mark Eldred.