Spáð er suðaustanstormi og -ofsaveðri á öllu landinu á morgun með mikilli úrkomu um suðaustanvert landið, einkum suðaustanlands. Búast má við lokunum á vegum og því að flug raskist. Þá mælast almannavarnir til þess að foreldrar á höfuðborgarsvæðinu sendi ekki ung börn ein í skólann á morgun.
Átök Kúrda og Tyrkja í norðvesturhluta Sýrlands eru komin á annað og hættulegra stig, eftir að hersveitir hliðhollar sýrlenskum stjórnvöldum komu þangað í dag til að liðsinna Kúrdum. Þegar hefur slegið í brýnu milli sýrlensku sveitanna og tyrkneskra hersveita á svæðinu.
Staða kvenna af erlendum uppruna sem eiga í skilnaðar- eða forsjárdeilum er sérstaklega viðkvæm, segir Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands og algengt að þau dragist á langinn.
Það er óljóst hversu vel íslenskir iðnaðarmenn þekkja asbest en stór hluti þeirra sem nú eru starfandi fékk enga fræðslu um það í skóla. Iðnaðarmaður sem missti föður sinn úr asbestkrabba segir dæmi um að iðnaðarmenn geri lítið úr hættunni sem fylgir efninu.
Náttúrufræðingar sætta sig ekki við launatilboð ríkisins. Þrjú félögu höfnuðu tilboðinu en 17 hafa samið. Arnar Páll Hauksson ræðir við Maríönnu H. Helgadóttur, formann Félags íslenskra náttúrufræðinga.
Stór hluti starfandi iðnðarmanna fékk enga fræðslu um hættu sem stafað getur af asbesti og það getur verið dýrt og tafsamt að fjarlægja asbestplötur í samræmi við lög og reglur. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og ræðir við Kristinn Tómasson, yfirlækni hjá Vinnueftirlitinu.
Risnugreiðslur til breskra þingmanna vöktu mikla reiði og hneykslan fyrir nokkrum árum og svo fór að átta þingmenn voru dæmdir í fangelsi, sjálfstæð stofnun tók við launagreiðslum og risnugreiðslur eru nú opinberar. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.