Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ómannúðlegt, hvernig farið er með börn ólöglegra innflytjenda í Bandaríkjunum, þegar þau eru tekin frá foreldrum sínum á landamærunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf í dag í skyn að hann myndi gefa út tilskipun um að þessu yrði hætt.
Gylfi Arnbjörnsson ætlar að hætta sem forseti Alþýðusambandsins í haust. Hann tilkynnti þetta á miðstjórnarfundi ASÍ í dag. Hann segist vona að verkalýðshreyfingin nái vopnum sínum og sameinist í störfum sínum fyrir launafólk á Íslandi í komandi kjarasamningum.
Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs starfsgreinafélags hefur ákveðið að gefa kost á sér sem forseti ASÍ.
Umsvif Íslendinga á Airbnb hafa aukist til muna síðastliðin ár, með tilheyrandi áhrifum á húsnæðismarkaðinn. Hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði telur ljóst að herða þurfi eftirlit með skammtímaleigu.
Mjög mikil aðsókn er í hjúkrunarfræði en einungis fáir komast inn. Forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri segir að skólinn hafi lagt til leiðir til að fjölga klínískum plássum.
Loftslagsráð, sem á að veita stjórnvöldum aðhald í loftlagsmálum, kom saman í fyrsta sinn í morgun.
Gylfi hættir sem forseti. Arnar Páll Hauksson tala við Gylfa Arnbjörnsson.
Lýðræði á undir högg að sækja. Pálmi Jónasson segir frá.
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður. Magnús Þorsteinn Magnússon.