Spegillinn

Spegillinn 20.mars 2018


Listen Later

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag dagmóður í níu mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, og barnaverndarlagabrot, gegn tæplega tveggja ára stúlkubarni.
Forstig mergæxlis í rannsókninni 'Blóðskimun til bjargar' hafa verið greind hjá 1500 manns. 1000 af þessum 1500 höfðu ekki hugmynd um að þau væru með forstig.
Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að fjármálastefna ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2018 til 2022 verði samþykkt óbreytt. Minnihlutinn segir að fjármaálstefnan sé meingölluð, fái falleinkunn frá flestum hagsmunaaðilum og vill vísa henni frá.
Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands, er grunaður um að hafa þegið jafnvirði yfir 600 milljóna króna af Muammar Gaddafi, einvaldi í Líbíu sem runnu í kosningasjóð hans árin 2006 og 2007. Franska efnahagsbrotalögreglan hefur haft hann til yfirheyrslu í dag vegna málsins.
Bresk þingnefnd hefur boðað Mark Zuckerberg stofnanda og forstjóra Facebook til að sitja fyrir svörum vegna uppljóstrana um fyrirtækið Cambridge Analytica, en fyrirtækið nýtti sér persónuupplýsingar Facebook.
Hafsteinn Jakobsson, deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins, hefur sagt upp störfum eftir 26 ár hjá félaginu. Ástæðan er vantraust sem hann segir hafa komið fram á störf sín. Fleiri hafa yfirgefið deildina vegna þessa. Stjórn og framkvæmdastjóri Rauða krossins gagnrýndu kaup Eyjafjarðardeildar á húsnæði á Akureyri, endurnýjun þess og innréttingu. Gunnar Frímannsson, formaður Eyjafjarðardeildar Rauða krossins segir stjórnina þar ekki gera athugasemdir við þessa gagnrýni. Hægt hefði verið að gera betur. En þar sé ekki við deildastjórann einan að sakast, fleiri hafi komið að málum.
Opinn félagsfundur Viðreisnar í Reykjavík samþykkti í dag tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Þrjú efstu sæti listans skipa Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, rekstrarhagfræðingur, Pawel Bartoszek, stærðfræðingur og Diljá Ámundadóttir, almannatengill og varaborgarfulltrúi. Benedikt Jóhannesson fyrrverandi formaður Viðreisnar skipar heiðurssæti listans.
Ringo Starr trommuleikari The Beatles ber nú titilinn Sir Ringo Starr. Hann var aðlaður í Buckinghamhöll í dag.
Kristján Sigurjónsson talar við Salvör Nordal, umboðsmann barna, um viðbrögð hennar við UNICEF skýrslunni sem kynnt var í dag um málefni hælisleitendabarna. Þar kemur fram að Norðurlandaþjóðirnar standist ekki fyllilega alþjóðlegar og innlendar skuldbindingar um að tryggja réttindi barna í leit að vernd, þar á meðal Ísland. . Samkvæmt skýrslunni þá vantar upp á að þau
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners