Gatwick-flugvelli var lokað á nýjan leik nú síðdegis vegna gruns um að sést hefði til dróna í nágrenni flugvallarins.
Félagsdómur dæmdi Icelandair í vil gegn Flugfreyjufélagi Íslands. Icelandair var í fullum rétti þegar ákveðið var að taka fyrir hlutastöf flugliða og gera starfsfólki skylt að vera í fullu starfi.
Ríkissáttasemjari stefnir að því að boða fund milli jóla og nýárs í kjaradeilu SA og þeirra félaga sem hafa vísað deilunni til sáttasemjara.
Yfirvöld í Marokkó hafa handtekið níu til viðbótar við þá fjóra sem fyrir eru í varðhaldi vegna morðs á tveimur ungum konum frá Noregi og Danmörku. Mennirnir eru allir taldir tengjast hryðjuverkasamtökum.
Stefnt að því að byggja meðferðarheimili í Garðabæ fyrir börn. Viljayfirlýsing var undirrituð í dag.
Umhverfisstofnun ætlar að rannsaka svifryksmengun fimm daga fyrir og eftir áramót, þar sem blý verður meðal annars mælt í andrúmsloftinu.
Lektor við Háskólann í Reykjavík segir það nánast náttúrulögmál hér á landi að stærri framkvæmdir fari fram úr áætlun. Ísland skeri sig úr að þessu leyti. Arnar Páll Hauksson talar við Þórð Víking Friðgeirsson.
Breska lögreglan leitar enn þeirra sem flugu dróna eða drónum yfir Gatwick flugvöll í gær og fyrradag. Hún útilokar ekki mótmæli umhverfissinna en ekkert hefur verið gefið upp frekar. Vellinum var lokað aftur í dag eftir að sást til dróna á flugi.
Anna Kristín Jónsdóttir talar við Þórhildi Elínu Elínardóttur.