Undirbúningur er hafinn að boðun staðbundinna verkfalla eftir að Efling, VR og Verkalýðsfélög Akraness og Grindarvíkur slitu samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Aðgerðaáætlun um fyrirhuguð verkföll verður kynnt í verkalýðsfélögunum á morgun. Formaður VR segir að tilboð atvinnurekenda feli í sér kjararýrnun og það sé svívirða að leggja slíkt tilboð fram.
Atvinnurekendur lögðu ekki fram nýtt tilboð á sáttafundinum í dag. Formaður Samtaka atvinnulífsins segir að tilboðið sem samtökin lögðu fram markist af því heildarsvigrúmi sem sé til skiptanna á íslenskum vinnumarkaði.
Starfsgreinasambandið ákvað í dag að vísa kjaradeilunni við SA til Ríkissáttasemjara.
Borgarritari segir að undanfarna mánuði hafa fáeinir borgarfulltrúar ítrekað vænt starfsfólk Reykjavíkurborgar um óheiðarleika.
Efnt verður til átaks til að efla heilsu fólks á vinnustöðum. Landlæknir, Vinnueftirlitið og Virk - starfsendurhæfing skrifuðu undir samkomulag þess efnis í dag.
Nú er ljóst að undirbúningur að boðun verkfalla er hafinn eftir að verkalýðsfélögin Efling, VR og verkalýðsfélögin á Akranesi og í Grindavík slitu samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins í dag. Stjórnir og samninganefndir félaganna koma saman á morgun þar sem ákveðið verður hvernig staðið verður að verkfallsboðun. Stefnt er að staðbundnum verkföllum. Aðgerðaráætlun er tilbúin sem lögð verður fyrir félagsfundi á morgun. Atvinnurekendur lögðu ekki fram nýtt tilboð á sáttafundinum í dag. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir að tilboðið sem samtökin lögðu fram miðist við heildarsvigrúmið á íslenskum vinnumarkaði. Arnar Páll segir frá og talar við Halldór Benjamín Þorbergsson og Ragnar Þór Ingólfsson.
Vinnumarkaðsfræðingur segir að staðan á vinnumarkaði sé snúin og flókin. Mörg ár sé síðan staðan hafi verið svo flókin í kjarasamningum á almenna vinnumarkaðinum. Kristín Sigurðardóttir talar við Gylfa Dalmann.
Það eru erfiðir tímar í flugrekstri, tvö félög nýlega gjaldþrota og fleiri talin standa tæpt, til dæmis Wow og Norwegian. Gamalgrónu flugfélögin hafa átt erfitt með að laga sig að breyttum ferðaháttum og nýju flugfélögunum tekst að bjóða ódýr fargjöld en eru oft illa fjármögnuð og geta því illa brugðist við kostnaðarhækkunum eða færri farþegum. Og enn er þess beðið að flugfélagið Wow ljúki samningum við Indigo Partners. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður Mark Eldred.