Spegillinn

Spegillinn 21. janúar 2019


Listen Later

Ríkisstjórnin var mynduð til að viðhalda ríkjandi ástandi sem hún sjálf kallar stöðugleika, hún er ríkisstjórn kyrrstöðu og íhaldssemi segir Guðundur Andri Thorsson varaþingflokksformaður Samfylkingarinnar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að stjórnmálin skuldi þjóðinni breytingar á stjórnarskrá.
Flestir farþeganna sem lentu í rútuslysi á Kjalarnesi í gærkvöldi voru í bílbelti, og því fór ekki verr segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Jóhann Bjarni Kolbeinsson ræddi við hann.
Forsætisráðherra Bretlands ætlar að reyna enn og aftur að fá fram breytingar á samningnum um Brexit, útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Björn Malmquist segir frá.
Rauði krossinn hefur vart undan við að tæma fatagáma og flokka föt sem fólk gefur frá sér. Tuttugu feta gámar hjá Sorpu fyllast iðulega á innan við viku. Alma Ómarsdóttir talar við Björgu Kjartansdóttur, sviðsstjóra hjá Rauða krossinum og Guðbjörgu Rut Pálmadóttur flokkunarstjóra Rauða krossins.
Ekki er ráðlegt að líta á endurvinnslu sem lausn á þeim mikla vanda sem óhófleg plastnotkun jarðarbúa er. Vandamálið er of mikil notkun á plasti, segir Birgitta Stefánsdóttir sem starfar á sviði loftslagsmála og græns samfélags hjá Umhverfisstofnun. Verð á endurunnu plasti hefur lækkað að undanförnu.
Forstjóri RARIK bindur vonir við að leið finnist til að leggja ljósleiðara til Mjóafjarðar næsta haust. Neyðarlínan og landeigandinn hafa ekki náð samkomulagi um lagnaleiðina en RARIK kannar hvort hægt sé að lækka kostnað og minnka rask með því að saga ofan í berg fyrir strengjunum á erfiðustu köflunum. Rúnar Snær Reynisson segir frá.
Forseti Sri Lanka segir að barátta stjórnvalda á Filippseyjum gegn eiturlyfjum sé til mikillar fyrirmyndar og að hann hafi í hyggju að fylgja því fordæmi. Alþjóðaglæpadómstóllinn rannsakar hins vegar hvort stjórnvöld á Filippseyjum séu sek um glæpi gegn mannkyni. Jóhann Hlíðar Harðarson segir frá.
------------
Efnahags-, skatta- og atvinnumálanefnd miðstjórnar Alþýðusambandsins leggur til að tekið verði upp fjögurra þrepa skattkerfi í stað tveggja eins og nú er. Miðað er við að skatttekjur ríkisins verði eftir sem áður þær sömu. Horfið er frá kröfunni um að lægstu laun verði skattfrjáls. Forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að von væri á tillögum ríkisstjórnarinnar um skattkerfisbreytingar sem myndu gagnast þeim tekjulægstu. Arnar Páll Hauksson segir frá og heyrist í Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra.
Í dag kynnti Theresa May forsætisráðherra Breta þinginu næstu skref sín í útgöngu B
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners