Spegillinn

Spegillinn 21. janúar 2022


Listen Later

Spegillinn 21. janúar 2022
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs segir að skemmdarverkin sem unnin voru á fjölmiðlinum og bíl hans í nótt og gærkvöld séu gerð af yfirlögðu ráði. Þarna hafi verið útsendarar einhvers á ferð
Stúlku, sem sakaði skólabróður sinn um kynferðisbrot í skilaboðum á samfélagsmiðli, var heimilt að tjá sína upplifun, samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Norðurlands. Ummæli hennar um meint brot piltsins gegn annarri stúlku voru aftur á móti dæmd ómerk.
Skipstjóri á Herjólfi hefur verið lækkaður í tign og fengið áminningu í starfi eftir að kvartanir um óeðlileg vinnubrögð af hans hálfu bárust fyrirtækinu.
Hátt í fimmtíu þúsund kórónuveirusmit greindust í Rússlandi í gær. Þau hafa aldrei verið fleiri á einum degi. Ekki stendur til að herða smitvarnir þrátt fyrir það.
Sunnan og suðvestan hvassviðri skellur á landinu í kvöld. Appelsínugular viðvaranir taka gildi á norðan og vestanverðu landinu með kvöldinu og gular viðvaranir fyrir norðan og austan. Nokkrum leiðum á Vestur- og Norðurlandi verður lokað í kvöld vegna veðursins.
Lengri umfjöllun:
Þolendur kynferðisofbeldis hafa stigið fram undanfarið og greint frá ofbeldi af ýmsum toga. Yfirleitt greina þolendur frá reynslu sinni á samfélagsmiðlum, ýmist nafnlaust eða undir nafni. Vantraust þolenda í garð réttarkerfisins er ekki nýtt af nálinni. Lengi hafa þolendur efast um gagnsemi þess að fara með mál fyrir dómstóla því litlar líkur séu á sakfellingu í slíkum málum. Í gær var haldið málþing á vegum lagadeildar Haskólans í Reykjavík um MeToo og réttarkerfið. Spegillinn ræddi við fjórar konur sem fluttu erindi á málþinginu, þær Sigrúnu Ingibjörgu Gísladóttur, lögmann, dr. Margréti Einarsdóttur, prófessor við lagadeild HR, Dr. Maríu Rún Bjarnadóttur verkefnisstjóra gegn stafrænu ofbeldi hjá Ríkislögreglustjóra og Guðnýju Hjaltadóttur, lögfræðing sem stýrði málþinginu. Guðný fékk fyrst spurninguna sem var yfirskrift þingsins, getur verið að réttarkerfið virki ekki sem skyldi fyrir þolendur kynferðisofbeldis? Bjarni Rúnarsson fjallaði um málþingið.
Norska prinsessan Ingrid Alexandra varð 18 ára í dag og í fyllingu tímans fullgild til að stýra ríkisráði Noregs ef þess gerist þörf. Hún fæddist með þá framtíð fyrir fótum að verða drottning. En hefur norska þjóðin verið spurð hvort hún vilji drottningu? Allt bendir til yfirgnæfandi stuðnings. Gísli Kristjánsson fjallar um málið.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners