Um áttatíu mál komu inn á borð nefndar um eftirlit með störfum lögreglu fyrsta árið sem hún starfaði. Annað eins hefur borist nefndinni það sem af er þessu ári. Flest málin höfðu með handtöku lögreglunnar að gera.
Dæmi eru um bæði nauðungarhjónabönd og heiðurstengt ofbeldi á Íslandi. Kona, sem gift var til Íslands, óskaði eftir vernd vegna ofbeldis og einangrunar. Eiginmaður hennar og fjölskylda hans hér á landi óskuðu þess að hún myndi deyja.
Viðræður um vopnahlé og friðarsamkomulag í Jemen verða haldnar snemma í næsta mánuði í Svíþjóð.
Formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vill skoða hvort hægt sé að fjármagna Borgarlínu og aðrar vegaframkvæmdir að hluta með veggjöldum.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands situr nú á fundi með forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til að reyna að ljúka samningi um Brexit. Fjórir dagar eru þar til leiðtogar ESB hittast til að leggja blessun sína yfir samninginn.
Ung kona með lítið barn leitaði verndar hér vegna þess að hún var beitt ofbeldi. Hún var gift til Íslands og bjó í algerri einangrun. Hún var í mikilli hættu vegna þess að eiginmaður hennar og fjölskylda hans sátu um hana og óskuðu þess að hún myndi deyja. Þetta kom fram á ráðstefnu í dag.
Arnar Páll Hauksson talar við Katarina Karantonis. Eddu 'Olafsdóttur og Ástu Kristínu Benediktsdóttur.
Hátt í hundrað og sjötíu mál hafa komið inn á borð nefndar um eftirlit með störfum lögreglu frá því hún tók til starfa 2017. Flest málin fyrsta starfsárið höfðu með handtöku lögreglu að gera. Trausti Fannar Valsson, lögfræðingur og formaður nefndarinnar segir að um 10 mál hafi komið til nefndarinnar í hverjum mánuði. Berglind Baldursdóttir segir frá og talar við Trausta Fannar Valsson.
Leo Varadkar, forsætisráðherra Íra, segir að ekki komi til greina að breyta samkomulaginu, sem náðist í síðustu viku, um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Fjöldi breskra þingmanna hefur lýst yfir megnri óánægju með samkomulagið. Bogi Ágústsson segir frá.