Alls hafa um 1300 jarðskjálftar mælst á Reykjanesskaga síðan stóri skjálftinn varð í gær
Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu mega ekki bera merki sem ekki tengjast lögreglunni á búningi sínum og var það áréttað í dag. Ásgeir Þór Ásgeirsson segir mynd sem birtist í dag af lögreglukonu með merki á vestinu sem tengd eru öfgaskoðunum og kynþáttahatri.
Samherji Holding, sem er félag tengt Samherja hf., hefur eignast ríflega 30% hlut í Eimskipafélagi Íslands og hyggst gera öðrum hluthöfum tilboð í þeirra hluti, eins og lög kveða á um. Haukur Holm segir frá.
Áhöfn togarans Júlíusar Geirmundssonar fékk að fara frá borði í dag. 22 úr henni hafa smitast af COVID-19. Þar af eru þrettán þeirra með virkt smit og þurfa því að sæta einangrun. Þetta segja niðurstöður sýnatöku sem fór fram um borð í gær. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir sagði frá og talaði við Gylfa Ólafsson, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Sóttvarnaaðgerðir verða hertar enn frekar í Tékklandi vegna kórónuveirufaraldursins. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Kórónuveirusmit eru komin yfir eina milljón á Spáni.
Keppni í efstu deildum í fótbolta hefst aftur 8. nóvember og á vera lokið þann þrítugsta.
----
Þing ASÍ krefst þess að atvinnuleysisbætur verðu hækkaðar þegar í stað og að bótatímabilið verði lengt um 6 mánuði. Formaður VR var kjörinn þriðji varaforseti ASÍ á þinginu í dag. Arnar Páll Hauksson sagði frá og talaði við Drífu Snædal.
Veikburða eldra fólki var kerfisbundið neitað um sjúkrahússvist í Stokkhólmi og nágrenni, á fyrstu mánuðum Covid-faraldursins. Oft var líknandi meðferð fyrirskipuð án þess að læknir hitti sjúklinginn. Hávær gagnrýni er nú uppi á framgöngu yfirvalda og margir spyrja hvort lög hafi verið brotin.
Greina má breytingar á viðhorfum dansks almennings og ekki síst ungra kvenna sem hafa drifið áfram umræður um kynferðislega áreitni og stjórnmál undanfarnar vikur og hefur orðið til þess að tveir leiðtogar Jafnaðarmannaflokksins og Radikale venstre hafa sagt af sér. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Rósu Guðrúnu Erlingsdóttur stjórnmálafræðing og Thomas Brorsen Smidt verkefnisstjóra hjá Alþjóðlega jafnréttisskólanum. Heyrist líka í Ritt Bjerregaard.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson