Framkvæmdir við borgarlínu hefjast á þar næsta ári, samkvæmt viljayfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem kynnt var í dag. Samgönguáætlun var einnig kynnt. Samkvæmt henni verður 160 milljörðum varið til framkvæmda og viðhalds á næstu fimm árum.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi skora á fólk, fyrirtæki og sveitarfélög á svæðinu að endurskoða viðskipti sín við VÍS. Tryggingafélagið ætlar að loka báðum starfsstöðvum sínum á Vesturlandi.
Nánast algilt er að opinberar framkvæmdir fari fram úr kostnaðaráætlun. Lektor við HR segir að verkefnin séu að meðaltali 60 prósent dýrari en lagt sé upp með. Stór innviðaverkefni séu fram undan og mikilvægt að betur takist til með þau.
Minjastofnun gerði ekki annað en að veita álit á endurgerð braggans í Nauthólsvík, segir forstöðumaður hennar. Ábyrgð á 250 milljóna framúrkeyrslu, liggi hjá borginni.
Það væri heppilegast að banna almenna notkun flugelda að mati tveggja prófessora við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Þau myndu vilja að það yrði gert, fyrir næstu áramót. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Hrund Andradóttur og Þröst Þorsteinsson.
Það sem stjórnendur í íslenskum orkufyrirtækjum hafa helst áhyggjur af og eru í óvissu um, eru netárásir, endurnýjanlegir orkugjafar, óstöðugur gjaldmiðill, válynd veður, gervigreind og blockchain-tækni svokallaðar bitakeðjur. Þetta er niðurstaða úr könnun Alþjóðaorkuráðsins. Örri tækniþróun fylgja krefjandi verkefni, og breytt notkun almennings á orku. Ragnhildur Thorlacius talar við Einar Kisel.
Max Otto von Stierlitz var svar KGB við James Bond og er sagður eiga stóran þátt í uppgangi og vinsældum Vladimirs Pútins. Þegar njósnarinn var á skjánum tæmdust göturnar í Sovétríkjunum, áttatíu milljónir sátu límdar við skjáinn og aðalritari kommúnistaflokksins Brezhnev lét færa miðstjórnarfundi til að æðstu ráðamenn þjóðarinnar misstu ekki af neinu. Pálmi Jónasson.