Spegillinn 21. febrúar 2018
Settur ríkssaksóknari í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, vill að allir sakborningarnir fimm í málinu verði sýknaðir við endurtekna meðferð þess fyrir Hæstarétti.
Tveir karlmenn sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa stolið 600 tölvum. Umfangsmikil rannsókn hefur staðið yfir.
Alþýðusambandið telur að forsendur kjarasamninga séu brostnar. Formannafundur er boðaður á miðvikudaginn þar sem afstaða verður tekin til þess hvort samningum verður sagt upp.
Engin reglugerð er til um hvaða atvinnusjúkdómar teljast bótaskyldir og það getur reynst afar erfitt að sækja bætur vegna þeirra. Örfáum hefur tekist að sækja bætur vegna asbeststengdra sjúkdóma.
Á fimmta hundrað íslenskir læknar hafa lýst yfir stuðningi við að umskurður drengja verði bannaður með lögum.
Rithöfundar eru ósáttir við að byrjað er að bjóða íslenskar hljóðbækur í áskrift á vefnum.
ASÍ telur forsendur kjarasamninga brostnar. Arnar Páll Hauksson talar við Gylfa Arnbjörnsson.
Hollendingar og kúamykjan. Kristján Sigurjónsson segir frá.