Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Fjármálaráðherra, segir kjaradeiluna komna í hnút og ljóst að þær tillögur sem stjórnvöld hafi lagt fram skipti í raun engu máli.
Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir munu beinast að allt að 25 hótelum og stærstu rútufyrirtækjunum. Endanleg aðgerðaráætlun verður kynnt og gerð opinber eftir helgi. Um 7 milljarðar eru í verkfallssjóðum verkalýðsfélaganna sem slitu í gær viðræðum við atvinnurekendur.
Formaður VR, segir að niðurstaðan af fundi hans með stjórnendum Almenna leigufélagsins sé að hittast aftur á mánudaginn. Fundur þeirra síðdegis í dag vegna hækkunar á leiguverði hafi verið góður og upplýsandi.
Forseti Venesúela, hefur lokað landamærum að nágrannaríkjum og ætlar að ekki að hleypa neyðaraðstoð til landsins. Baráttan um hylli almennings stendur nú sem hæst og bæði forsetinn og leiðtogi stjórnarandstöðunnar hafa blásið til stórtónleika við landamærin í kvöld.
Formaður Veiðifélags Mývants segist halda bjartsýnn til veiða að þessu sinni, en vetrarveiðin í vatninu hefst eftir viku. Skiptar skoðanir eru um hvort leyfa eigi aukna veiði í Mývatni.
Kostnaðurinn við að viðhalda mengunarvarnabúnaði í dísilbílum er óheyrilega mikill og ætti að vera niðurgreiddur af ríkinu. Þetta er mat manns sem hefur aðstoðað bíleigendur við að aftengja sótagnasíur í bifreiðum sínum. Félag íslenskra bíleigenda heldur því fram að fyrirtæki hans stundi ólöglega starfsemi í skjóli takmarkaðs eftirlits.
Lengri umfjallanir:
Kostnaðurinn við að viðhalda mengunarvarnabúnaði í dísilbílum er óheyrilega mikill, ósanngjarn og ætti að vera niðurgreiddur af ríkinu. Þetta er mat Gísla Rúnars Kristinssonar, eiganda Bílaforritunar ehf, fyrirtækis sem hefur aðstoðað fjölmarga dísilbíleigendur við að aftengja sótagnasíur og annan mengunarvarnabúnað í bifreiðum sínum. Félag íslenskra bíleigenda heldur því fram að fyrirtæki Gísla og önnur svipuð stundi ólöglega starfsemi í skjóli takmarkaðs eftirlits. Forsvarsmenn fyrirtækjanna vísa því á bug, þau aftengi nefnilega bara mengunarvarnarbúnað bílanna aðrir sjái um að fjarlægja hann. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman.
Um 7 milljarðar króna eru í verkfallssjóðum félaganna sem slitu í gær viðræðum við atvinnurekendur og hafa ákveðið að efna til staðbundinna verkfalla. Verkfallsaðgerðir munu beinast að allt að 25 hótelum á höfuðborgarsvæðinu og stærstu rútufyrirtækjunum. Endanleg aðgerðaráætlun verður kynnt eftir helgina. Arnar Páll Hauksson sagði frá.