Stjórn United Silicon óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í dag. Harmleikur, segir forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Milljarðar séu að verða að engu.
Demókratar og Repúblíkanar í öldungadeild bandaríkjaþings komust að samkomulagi nú síðdegis um að aflétta greiðslustöðvun bandaríska alríkisins.
Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata krafðist þess á Alþingi í dag að dómsmálaráðherra segði af sér.
Kínverska ríkisolíufélagið CNOOC hefur ákveðið að hætta olíuleit á Drekasvæðinu. Orkustofnun telur að Eykon energy hafi ekki bolmagn til að halda rannsóknum á svæðinu áfram.
Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar í Speglinum um gjalþrotabeiðni og sögu United Silicon
Arnar Páll Hauksson fjallar um ákvörðun Kínverja og Norðmanna að hætta olíuleit á Drekasvæðinu.
Sigrún Davíðsdóttir fjallar um mismunandi sýn Frakka og Breta á Brexit.