Foreldrar við Arnarbakka í Breiðholti eru óttaslegnir vegna sprautufíkla og ofbeldismanna sem hafast við í gömlum verslunarkjarna í hverfinu. Fólki hefur verið hótað líkamsmeiðingum og sprautunálar fundist í bakgörðum.
Samkomulag um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu er innan seilingar, segir Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. Svo virðist sem samningur um Brexit verði staðfestur á leiðtogafundi Evrópusambandsins á sunnudag.
Margt er til fyrirmyndar innan Orkuveitunnar, en einnig brotalamir sem taka verður á. Þetta er álit borgarstjóra og fulltrúa minnihlutans í borgarráði. Skýrsla innri endurskoðunar Reykjavíkur um málefni Orkuveitunnar var kynnt í dag.
Stefnt er að því að bjóða út rekstur nýs sjúkrahótels þvert á óskir Landspítalans. Framkvæmdum við hótelið er enn ekki lokið.
Viðræður standa enn milli þriggja ráðuneyta um rekstur og viðhald Húsavíkurhöfðaganga.
Bandaríkjaforsetarnir Barak Obama og Donald Trump hafa báðir endurvakið umræðu um hlutverk Bandaríkjanna sem átti sér stað með miklum krafti í kjölfar fyrri heimstyrjaldarinnar segir Sveinn M. Jóhannesson, sagnfræðingur og nýdoktor við rannsóknastofnunina í sagnfræði við háskólann í London. Eftir fyrri heimstyrjöldina eru Bandaríkin orðin öflugasta ríki veraldar. Bergljót Baldursdóttir talar við Svein M. Jóhannesson
Martin Vickers er þingmaður Íhaldsflokksins. Kjördæmi hans er Cleethorpes, rétt við Grimsby. Hann styður úrgöngu Breta úr ESB, ekki síst vegna fiskveiða. Hann er líka á því að það verði auðvelt fyrir Breta og Íslendinga að semja um sjávarútvegsmál því íslenskur fiskur skipti fiskvinnsluna í Grimsby og nágrenni miklu. Sigrún Daviðsdóttir.
Robert Mueller er lögfræðingur, repúblikani og fyrrverandi forstjóri FBI til 12 ára. Í maí 2017 skipaði dómsmálaráðuneytið hann í embætti saksóknara til að fara fyrir nefnd sem rannsakar möguleg afskipti Rússa af forsetakosningunum árið 2016. En um hvað snýst rannsóknin? Ólöf Ragnarsdóttur segir frá.