Spegillinn

Spegillinn 22. september 2021


Listen Later

Spegillinn 22. september 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Hátæknifyrirtæki í Garðabæ varð fyrir árás rússneskra tölvuþrjóta fyrir síðustu helgi. Þrjótarnir krefjast milljóna króna í lausnargjald fyrir gögn sem þeir lögðu hald á.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur skipað þriggja manna nefnd sem ætlað er að rannsaka atburðarásina í aðdraganda þess að formaður Knattspyrnusambands Íslands sagði af sér.
Þjóðverjar eru andvígir því að talibönum verði leyft að ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, eins og þeir hafa farið fram á.
Framsóknarflokkurinn er með rúmlega 14 prósenta fylgi í nýrri fylgiskönnun MMR og mælist næst stærstur. Sjálfstæðisflokkur er með tæp 22 prósent.
Athafnamaðurinn Róbert Guðfinnsson hefur sett allar eignir sínar sem tengjast ferðaþjónustu á Siglufirði á sölu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú andlát karlmanns á þrítugsaldri sem missti meðvitund í Sky Lagoon í Kópavogi.
Bæjarstjórinn í Fjallabyggð segir að ekki þurfi að ráðast í miklar framkvæmdir í Siglufjarðarhöfn til að útbúa þar aðstöðu fyrir nýtt varðskip. Hann telur miklu máli skipta fyrir landsbyggðina að varðskip skuli nú í fyrsta sinn hafa eignast heimahöfn úti á landi.
Lengri umfjöllun:
Þrír dagar eru til alþingiskosninga. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Einar K Guðfinnsson fyrrverandi þingmenn og fyrrverandi forsetar Alþings ræða kosningabaráttuna, yfirbragð hennar, samanburð við fyrri kosningar í Speglinum. Kristján Sigurjónsson talar við þau.
Art Basel eða listaverkamessan í Basel er mikilvægasti sölustaður nútímalistar og stendur nú yfir, var aflýst í fyrra. Covid hefur án efa áhrif á alþjóðlegan listamarkað eins og annað, sama með stafræna tækni og aukna umhverfisvitund, en nákvæmlega hver áhrifin verða er ekki ljóst eins og tíðindamaður Spegilsins heyrði í heimsókn á Art Basel. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners