Spegillinn 22.10.2018
Umsjón: Pálmi Jónasson
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að ung kona fannst látin á heimili sínu á Akureyri í gær. Ekki hefur verið hægt að yfirheyra manninn vegna annarlegs ástands hans.
Stjórnvöld í Þýskalandi ætla að frysta öll vopnaviðskipti við stjórnvöld í Sádi-Arabíu þar til morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi verði rannsakað til fulls. Forsætisráðherra Bretlands segir að sannleikurinn um morðið verði að koma í ljós.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti í dag ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að stöðva gjaldtöku Isavia fyrir rútustæði við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Nær fjórði hver Íslendingur ber lítið eða ekkert traust til þjóðkirkjunnar. Ánægja með störf biskups hefur aldrei mælst minni.
Lengri umfjallanir:
Krónprinsinn í Sádi-Arabíu er nánast einráður í skjóli föður síns. Hann hefur komið á ýmsum umbótum en stýrir landinu af fádæma hörku. Fullvíst er talið að hann hafi fyrirskipað morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi sem var bútaður í sundur með beinasög. Pálmi Jónasson segir frá.
Græningjar og aðrir minni flokkar unnu stórsigur í sveitarstjórnarkosningum í Belgíu. Hægriflokkar og popúlistar hafa verið á hraðri uppleið síðustu misserin í Evrópu og vekja því úrslitin nokkura athylgi á meginlandinu. Stjórnmálaskýrendur segja úrslitin geta verið forsmekkinn því sem koma skal í þingkosningum á næsta ári, og í kosningum til Evrópuþings. Guðmundur Björn Þorbjörnsson í Brussel segir frá.
Margar glæsieignir í Bretlandi eru í eigu aflandsfélaga sem fleyta þannig illa fengnu fé um Bretland. Ný heimild breskra yfirvalda til að gera illa fengnar eignir upptækar er engin allsherjar lausn en liður í viðleitni til að stemma stigu við þessu flæði. Heimildin á sér óbeina hliðstæðu í íslenskum lögum. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.