Spegillinn

Spegillinn 22.11.2011


Listen Later

12.11.2018
Umsjónarmaður Spegilsins er Pálmi Jónasson.
Skógareldar í Kaliforníu breiðast út á gríðarlegum hraða yfir svæði á við 80 íþróttavelli á hverri mínútu. Þessar aðstæður eru óviðráðanlegar, segir Halldór Björnsson, sérfræðingur í loftslagsmálum hjá Veðurstofu Íslands. Vegna loftslagsbreytinga megi búast við að meira verði um skógarelda á þessu svæði á næstu áratugum
Aðstoðarmönnum þingflokka á Alþingi verður fjölgað í sautján. Aukinn rekstrarkostnaður Alþingis nemur allt að 200 milljónum króna á ári.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur óskað eftir greinargerð frá bankaráði Seðlabanka Íslands vegna dóms Hæstaréttar í máli Seðlabankans gegn Samherja.
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Tryggingastofnunar um örorkulífeyri þeirra sem búið hafa í öðru EES-landi eigi sér ekki stoð í lögum. Breytingar gætu varðað hundruð öryrkja.
Formaður Neytendasamtakanna fagnar hugmyndum um að þýskur netbanki hefji starfsemi hér á landi. Það auki líkur á því að kostnaður neytenda lækki.
Lengri umfjallanir:
Halldór Björnsson, sérfræðingur í loftslagsmálum hjá Veðurstofu Íslands segir að skógareldarnir í Kaliforníu hafi brennt svæði á stærð við 80 íþróttavelli á hverri mínútu þegar verst lét og þeir séu óviðráðanlegir. Vegna loftslagsbreytinga megi gera ráð fyrir að tíðni skógarelda aukist um allt að helming á þessu svæði á næstu áratugum. Bergljót Baldursdóttir talaði við hann.
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Tryggingastofnunar um örorkulífeyri þeirra sem búið hafa í öðru EES-landi eigi ekki stoð í lögum. Breytingar gætu varðað hundruð öryrkja. Kona sem metin var með fulla örorku og hafði búið í Danmörku í fimm ár átti einingus rétt á rúmlega fjórðungi af fullum bótum. Hún leitaði til Umboðsmanns Alþingis. Arnar Páll Hauksson tók saman.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, lætur líklega aldrei undan kröfum Bandaríkjastjórnar um kjarnorkuafvopnun. Þetta er skoðun Mats Fogelmarks, sem var varnarmálafulltrúi í sænska sendiráðinu í Pyoungyang og í Kína um þriggja ára skeið. Hann ræddi samband Svía við Norður-Kóreu og Kína á fundi í Norræna húsinu, sem sænska sendiráðið og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands stóðu fyrir. Bogi Ágústsson tók saman.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners