Spegillinn 22.desember 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Ekkert lát er á jarðskjálftum við Fagradalsfjall. Þar hefur jarðskjálftahrina staðið í tæpan sólarhring. Vísindamenn telja að hrinan sé undanfari eldgoss.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið og flugvélaleiguna ALC til að greiða Isavia rúma tvo og hálfan milljarð króna vegna ?saknæmrar háttsemi? héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjaness í tengslum við kyrrsetningardeilu flugvélar WOW air.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag undanþágu frá viðskiptaþvingunum gegn Afganistan þannig að hjálparstarf geti hafist þar.
Mikið annríki hefur verið hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Um tólf hundruð fjölskyldur hafa leitað þangað eftir aðstoð fyrir jólin.
Veitingamenn bíða nú svara frá heilbrigðisráðuneytinu um hvort þeim verði veitt undanþága frá sóttvarnareglum sem eiga að taka gildi á miðnætti og fái því að hafa opið lengur á morgun.
Sameinuð stjórnarandstaða nær árangri og málum í gegn segir Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar jafnvel jafn ólíkir flokkar og nú skipi stjórnarandstöðuna. Flokkarnir segja ákvörðun fjárlaganefndar að fá 150 milljóna viðbótarfjármagn til sálfræðiþjónustu vera vegna þrýstings þeirra.
Lengri umfjöllun
Ríkið var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun sýknað í málum þriggja félaga Gráa hersins gegn Tryggingastofnun. Dómnum verður áfrýjað en þremenningarnir vildu fá það viðurkennt að Tryggingastofnun hefði verið óheimilt að skerða ellilífeyri þeirra og heimilisuppbót vegna greiðslna úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Dómurinn tók þetta ekki til greina og taldi að ríkinu væri heimilt að beita skerðingum, en hins vegar viðurkennt að eignarréttarákvæði stjórnarskrár eigi við um lífeyrinn. Kristján Sigurjónsson ræðir við Helga Pétursson formann Landssambands eldri borgara um dóminn í beinni útsendingu.
Kjaradeila Félags grunnskólakennara og Sambands Íslenskra sveitarfélaga er komin á borð ríkissáttasemjara. Samningurinn sem undirritaður var í byrjun september 2020 rennur út um áramótin. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir formaður félags grunnskólakennara sagði í Speglinum fyrir helgi að ágreiningur væri um útfærslu á styttingu vinnuvikunnar og 30 daga orlofi kennara. Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri í Hvergerði er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kristján Sigurjónsson ræðir við hana um kjaramálin almennt, en spurði fyrst út ágreininginn við grunnskólakennara, sem eru um 5300 talsins í starfi hjá sveitarfélögunum.