Spegillinn 23. apríl 2019
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
Forsætisráðherra Sri Lanka varaði við því í dag að hryðjuverkamenn væru enn á á ferli eftir hryðjuverkárásirnar í landinu á páskadag.
Bæjarráð Vestmannaeyja hefur haft samband við dýpkunarverktaka erlendis og athugað hvort hann geti hjálpað til við dýpkun Landeyjahafnar. Ráðið segir óboðlegt að núverandi verktaki hafi hvorki tækjakost né metnað til að sinna verkinu.
Dómari veitti Isavia í dag vikufrest til að svara kröfu bandaríska flugvélagaleigusalans ALC, sem vill fá kyrrsetta flugvél sína afhenta og sakar Isavia um stjórnarskrárbrot.
Gróðureldar loga víða í Suður-Svíþjóð. Slökkviliðsmenn og sjálfboðaliðar fá ekki við neitt ráðið. Sænska veðurstofan varar við mikilli eldhættu næstu daga.
Lögregla hefur fengið öll gögn sem benda til misferlis hjá bílaleigum, segir forstjóri Samgöngustofu. Enn sé möguleiki á að fyrirtæki, sem hafi orðið uppvís að því að eiga við ökumæla, verði svipt starfsleyfi.
Nær allur íslenski uppsjávarflotinn veiðir nú kolmunna í færeysku landhelginni.
Lengri umfjallanir:
Sviðstjóri hjá verkfræðistofunni Eflu segir að ákvörðun hafi verið tekin um að engin mengandi starfsemi verið í Finnafjarðarhöfn. Hins vegar sé stefnt að uppbyggingu fiskeldis og vetnisframleiðslu á hafnarsvæðinu. Áform séu um að flyja bæði út fisk og vetni. Bæði Landvernd og Umhverfisstofnun gagnrýndu áform um hafnarframkvæmdir í Finnafirði sem gert var ráð fyrir þegar aðalskipulagi Langanesbyggðar var breytt 2012. Gagnrýnin beindist einkum að hafnarsvæðið yrði að hluta í Gunnólfsvík í Finnafirði. Víkin og líka Gunnólfsvíkurfjall eru á náttúruminjaskrá og bæði Landvernd og Umhverfisstofnun lögðust gegn því að iðnaðarsvæði myndi raska náttúrunni þar. Eftir því sem næst verður komist eru sjaldgæfar plöntur að finna þarna eins og til dæmis fjallakræfill sem er á válista, skógfjóla og lyngjafni. Um daginn var stofnað þróunarfélag um þróun og uppbyggingu svæðisins. Bremenports á 66% hlut, verkfræðistofan Efla 26% og Vopnafjörður og Langanesbyggð 8%. En hverju svara eigendur félagsins gagnrýni Landverndar og Umhverfisstofnunar? Hafstein Helgason, sviðsstjóri viðskiptaþróunar hjá Eflu, segir að samkvæmt aðalskipulaginu hafi staðið til að byggja upp hafnarsvæði í Gunnólfsvík og líka sunnan til í firðinum. Hann segir að svæðið hafi verið rannsakað og ekki hafi fundist, hvorki norðan né sunnan megin, sjaldgæfar plöntur. Nú séu ekki áform um að hafnarsvæðið nái til Gúnnólfsvíkur. Arnar Páll Hauksson talar við Hafstein.
Morðið á b