Spegillinn

Spegillinn 23. febrúar 2018


Listen Later

Tilfærsla Braga Guðbrandssonar úr starfi forstjóra Barnaverndarstofu, tengist ekki kvörtunum sem bárust frá barnaverndarnefndum Reykjavíkur og Hafnarfjarðar um samskipti þeirra við hann, segir Ásmundur Einar Daðason, félags - og jafnréttismálaráðherra
Ríkissjóður er búinn að selja Kaupskilum þrettán prósenta hlut sinn í Arion banka á 23,4 milljarða króna.
Veðurstofan varar við aukinni hættu á skriðuföllum vestan frá Eyjafjöllum og austur á Austfirði vegna mikillar úrkomu.
Að minnsta kosti þrjátíu og tvö létust í loftárásum sem sýrlenski stjórnarherinn og Rússar gerðu á Austur-Ghouta í Sýrlandi í dag
Það eru allir velkomnir á Borgarbókasafnið við Tryggvagötu svo framarlega sem þeir neyta ekki áfengis eða vímuefna inni á safninu, eru ekki áberandi ölvaðir eða lyfjaðir, ekki með háreysti og ekki leggur af þeim stækan óþef. Það getur stundum reynst krefjandi fyrir bókaverði að mæta útigangsmönnum sem sækja bókasafnið og samræma þarfir þeirra þörfum annarra gesta en það er eitthvað sem miðborgarsöfn um allan heim kannast við. Við flokkum ekki fólk segir Pálína Magnúsdóttir, borgarbókavörður. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við hana.
Fasistar eru áberandi fyrir þingkosningarnar á Ítalíu 4. mars og ótti við innflytjendur. Fimm stjörnu hreyfingin popúlíska verður stærsti flokkurinn en hægri bandalag Silvio Berlusconi verður fjölmennast á þingi. Lýðræðisflokkurinn sem er við stjórnvölinn geldur afhroð. Pattstaða er líklegasta niðurstaðan og að kosningar verði tíðar á næstu misserum. Pálmi Jónasson.
Ekki er ljóst hvað Ísland þarf að draga mikið úr losun gróðurhúsaloftegunda vegna Parísarsamkomulagsins fram til ársins 2030. Það ræðst í viðræðum við Evrópusambandið sem væntanlega hefjast von bráðar. Líklegt þykir að Ísland verði að minnka losun um 35%. Arnar Páll Hauksson ræddi við Kristínu Lindu Árnadóttur.
Spegillinn 23. febrúar 2018
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners