Alþýðusambandið vill að tekinn verði upp hátekjuskattur og að skattþrepum verði fjölgað úr tveimur í fjögur. Einnig að barnabætur nái til þorra barnafjölskyldna. Forseti ASÍ segir að barnabætur séu núna fátæktarstyrkur.
Engin strokulax fannst í reknetum við sjókví Arnarlax í Arnarfirði. Net voru sett út eftir að gat fannst á kvínni.
Minjastofnun Íslands leggur til að Þjórsárdalur verði friðlýstur í heilu lagi.
Brasilía sigraði Ísland með þriggja marka mun í lokaleik íslenska liðsins á HM karla í handbolta í dag. Landsliðsþjálfarinn segir að ákveðið reynsluleysi hafi sagt til sín í dag, en framtíðin sé björt.
Grænlendingar hlusta mun meira á útvarp og horfa meira á sjónvarp en aðrar Norðurlandaþjóðir. Netnotkun þeirra er hins vegar umtalsvert minni.
Skattatillögur miðstjórnar ASÍ. Lagt er til að skattþrepum verði fjölgað úr tvimur í fjögur. Arnar Páll Hauksson talar við Drífu Snædal, forseta ASÍ og einnig heyrist í Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra.
Í hverjum janúarmánuði í tæp fimmtíu ár hefur elíta heimsins, um 3.000 stjórnmálamenn, forstjórar stórfyrirtækja, frægir lista- og athafnamenn, forsvarsmenn félagasamtaka og ungar vonarstjörnur flykkst til smábæjarins Davos í svissnesku ölpunum. Hvers vegna? Til að sitja ráðstefnu sem haldin er af félagasamtökum sem kallast Alþjóðaefnahagsráðið, World economic forum. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og talar við Ólaf Ragnar Grímsson fyrrverandi forseta Íslands.