Maður sem varð fyrir skotárás í Hafnarfirði í gær, með sex ára syni sínum, fann hvernig glerbrotum rigndi skyndilega yfir hann. Þegar hann steig út úr bíl sínum sá hann byssumann á svölum fjölbýlishúss.
Einn samningamanna lögreglu segir útkallið í gær hafa verið tvísýnt. Útköllum samningahóps ríkislögreglustjóra hefur fjölgað undanfarin tvö ár. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir talaði við Einar Sigurjónsson.
Nýtt covid lyf getur fækkað sjúkrahúsinnlögnum um 85 prósent. Stefnt er á að lyfið verið aðgengilegt hér á landi í haust. Yfirlæknir á Landspítala segir að lyfið muni skipta sköpum í baráttunni gegn kórónuveirunni. Urður Örlygsdóttir talaði við Magnús Gottfreðsson.
Alvotech varð í dag fyrsta fyrirtækið sem skráð er á markað samtímis á Íslandi og í Bandaríkjunum. Sveinn Ólafur Melsted ræddi við Róbert Wessman.
-----------------------------
Lengri umfjöllun:
Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í morgun að karlmaður á sjötugsaldri sem var handtekinn vegna skotárásarinnar í Hafnarfirði í gær skuli vistaður á viðeigandi stofnun í mánuð. Samningamenn ræddu við manninn í á fimmtu klukkustund í gær um að gefa sig sjálfviljugur fram. Góðri samvinnu má þakka að ekki fór verr segir Einar Sigurjónsson, lögreglufulltrúi og samningamaður hjá ríkislögreglustjóra. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir talaði við hann.
Apótek og heilbrigðisfyrirtæki í Svíþjóð deildu mjög persónulegum upplýsingum um viðskiptavini sína með Facebook, án samþykkis eða vitneskju fólks. Upplýsingarnar voru nýttar í markaðsskyni en forsvarsmenn fyrirtækjanna segjast ekki hafa gert sér grein fyrir hvað þeir voru að gera. Kári Gylfason sagði frá.
Agnarlítil blóðsuga hefur á örfáum árum náð að setja mark sitt á líf fjölmargra Íslendinga yfir sumarmánuðina. Hlýnandi loftslag virðist hafa hjálpað til við að lokka lúsmýið, frægasta skordýr landsins, hingað á svo stuttum tíma. Við ræðum við Gísla Má Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við háskóla íslands og Moniku Hjálmtýsdóttur varaformann Félags fasteignasala.