Spegillinn

Spegillinn 23. nóvember 2018


Listen Later

Spegillinn 23. nóvember 2018.
Umsjónarmaður Bergljót Baldursdóttir
Maðurinn, sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa valdið eldsvoða í húsi á Selfossi í lok október með þeim afleiðingum að tveir létust, sagði lögreglu á vettvangi að hann væri morðingi. Þá kom fram í málflutningi lögreglu fyrir dómi að maðurinn hafi áður farið óvarlega með eld inni í húsinu.
Landsréttur staðfesti í dag 19 ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Thomasi Möller Olsen fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur en gagnrýnir hvernig staðið var að yfirheyrslum yfir Thomasi eftir fyrstu skýrslutökuna.
Ísland getur haft mjög mikil áhrif á alþjóðavettvangi, segir fastafulltrúi Íslands gagnvart Nató. Hernaðarógn dagsins í dag er allt önnur en þegar við fyrst öðluðumst fullveldi, segir forsætisráðherra. Málþing um fullveldi og þjóðaröryggi var haldið í dag.
Biskup hefur ákveðið að sóknarprestur Grensáskirkju sem gerðist sekur um siðferðisbrot gagnvart tveimur konum, verði áfram í leyfi. Áfrýjunarnefnd staðfesti í dag niðurstöðu úrskurðarnefndar um brot prestsins.
Neytendur um allan heim hafa í dag freistað gæfunnar í jólagjafainnkaupum á svarta föstudeginum. Verslunarstjórar eru sammála um að viðskiptin hafi færst meira á netið.
Lengra efni:
Stuðningur við flokka sem kenndir hafa verið við lýðhyggju eða popúlisma hefur stigmagnast í Evrópu síðustu áratugi. Fylgi þeirra hefur þrefaldast frá því skömmu fyrir aldamót. Greinendur hafa lagst yfir úrslit þingkosninga síðustu tveggja áratuga í þrjátíu og einu ríki í álfunni fyrir breska miðilinn Guardian og þar eru leiddir saman stjórnmálafræðingar og blaðamenn víða að. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Guðmund Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði.
Donald Trump ítrekar stuðning sinn við krónprinsinn af Sádi-Arabíu í tengslum við morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi. Sádi-Arabía sé mikilvægur bandamaður Bandaríkjanna. Á þakkagjörðarhátíðinni vill hann fyrst og fremst þakka sjálfum sér fyrir allt sem hann hefur gert fyrir land og þjóð. Pálmi Jónasson tók pistilinn saman
Katarina Karantonis norskur sérfræðingur telur mikilvægt að unnið sé þvert á stofnanir þegar kemur að því að aðstoða konur vegna nauðungarhjónabanda og heiðursofbeldis. Þessi vandamála hafa í aukum mæli skotið upp kollinum hér á landi. Arnar Páll Hauksson talar við Katarina Karantonis sérfræðing í norsku teymi sem einkum fæst við mál sem tengjast nauðungarhjónaböndum, heiðursofbeldi og umskurði kvenna. Einnig heyrist í Eddu Ólafsdóttur, félagsráðgjafa á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar og Ástu Kristínu Benediktsdó
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners