Klínísk starfsemi Landspítala verður frá næstu áramótum fjármögnuð í samræmi við umfang þjónustunnar. Önnur verkefni spítalans verða fjármögnuð með föstum fjárveitingum eins og áður. Páll Matthíasson, forstjóri spítalans segir framundan miklar breytingar á hluta af rekstri spítalands. Jón Agnar Ólason talaði við hann.
Veldisvöxtur er í netárásum á fyrirtæki að sögn Antons Más Egilssonar aðstoðarforstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis, Haukur Holm ræddi við hann.
Munnlegum málflutningi í Rauðagerðismálinu lauk síðdegis.
Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Sjálfstæðisflokkurinn hafi varið mestu í auglýsingar á samfélagsmiðlum fyrir alþingiskosningarnar á laugardag. Sigurður Svansson eigandi auglýsingastofunnar Sahara hefur tekið saman auglýsingar flokkana á samfélagsmiðlum. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við hann í Síðdegisútvarpinu á rás2.
Ástand og lega Siglufjarðarvegar veldur vegfarendum kvíða og vegurinn er oft ófær á köflum. Elías Pétursson bæjarstjóri Fjallabyggðar segir að jarðgöng séu eina lausnin en þau séu þó ekki á dagskrá stjórnvalda. Anna Þorbjörg Jónasdóttir ræddi við hann.
Húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,9 prósent í ágúst frá fyrri mánuði og leiguvísitalan er hærri en nokkru sinni fyrr. Hildur Margrét Jóhannsdóttir sagði frá.
-----------
Tugir þúsunda hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í alþingiskosningunum og stefnir í að fleiri en nokkru sinni kjósi með þeim hætti. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir að miðað við kosningar fyrir fjórum árum hafi fjöldinn nærri tvöfaldast. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana.
Mikið hvílir á sveitarfélögum vegna loftslagsbreytinga og í nýrri stefnu ríkisins um aðlögun að breytingunum eru sveitarfélögin þungamiðjan. Þetta segir loftslagsfræðingur á Veðurstofu Íslands. Ragnhildur Thorlacius tók saman.
Þrjátíu þúsund krónur á dag, hvern einasta dag, síðustu tíu árin. Svo mikið hafa íbúar í fínustu úthverfum Stokkhólm grætt á því einu að búa í einbýlishúsunum sínum. Gríðarlega hækkanir á húsnæðisverði í Svíþjóð undanfarinn áratug hafa skapað mikil auðæfi. En um leið ýtt undir misskiptingu og margskonar samfélagslegan vanda. Kári Gylfason í Svíþjóð segir frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Björg Guðlaugsdóttir